Árni Páll harmar ákvörðun Ástu 27. ágúst 2010 12:24 Árni Páll Árnason. Mynd/Anton Brink
Félagsmálaráðherra vonar að nýr forstjóri verði ráðinn til Íbúðalánasjóðs innan fárra vikna. Hann harmar að Ásta H. Bragadóttir starfandi forstjóri skuli hafa dregið umsókn sína til baka. Hann segir að ríkissjóður muni styrkja fjárhagslega stöðu sjóðsins. Erfiðlega hefur gengið á ná samstöðu í stjórn Íbúðalánasjóðs um ráðningu nýs forstjóra sjóðsins en stjórnin er skipuð tveimur fulltrúum Sjálfstæðisflokks, tveimur frá Framsóknarflokki og einum frá Samfylkingunni. Það kann eftirvill að hafa áhrif á hvað illa gengur að velja nýjan forstjóra. Stjórn sjóðsins hefur nú skipað þriggja manna valnefnd til að fara yfir hæfni umsækjenda og gerði það að áeggjan Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra, sem segir málið hins vegar algerlega vera á forræði stjórnarinnar. „Það kom fram að hálfu stjórnarformanns vilji til þess að ná betri samstöðu heldur en var í stjórninni. Ég setti þá fram þessa hugmynd en það var stjórnarinnar að meta hvort hún vildi fara þá leið eða einhverja aðra," segir Árni Páll. Félagsmálaráðherra segir mikilvægt að það sé hafið yfir allan vafa að hæfasti einstaklingurinn sé valinn í stöðuna. Valnefnd hafi farið yfir umsóknir um stöðu seðlabankastjóra í fyrra og það sé stefna stjórnvalda að valnefndir verði notaðar í framtíðinni við ráðningu í æðstu stöður hjá ríkinu. Ásta H. Bragadóttir hefur gengt forstjóraembættinu um nokkurra mánaða skeið og var ein umsækjenda en hefur nú dregið umsókn sína til baka. Árni segir bagalegt að hún hafi gert það og hann hefði viljað sjá hana í hópi umsækjenda til enda. Fjárhagsstaða sjóðsins hefur farið versnandi og er eignfjárhlutfallið komið niður í 2,1 % en markmiðið er að það sé 5 prósent. Ráðherra segir að draga verði úr áhættu sjóðsins og leggja honum til aukið eigið fé.
Tengdar fréttir Dregur umsókn til baka vegna hugmynda ráðherra Ásta Bragadóttir starfandi framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, hefur ákveðið að draga umsókn sína um starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs til baka í kjölfar hugmynda félagsmálaráðherra að skipa valnefnd til að meta hæfi umsækjanda um stöðu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs. 26. ágúst 2010 22:15 Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Sjá meira
Dregur umsókn til baka vegna hugmynda ráðherra Ásta Bragadóttir starfandi framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, hefur ákveðið að draga umsókn sína um starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs til baka í kjölfar hugmynda félagsmálaráðherra að skipa valnefnd til að meta hæfi umsækjanda um stöðu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs. 26. ágúst 2010 22:15