Innlent

Atlantshafsbandalagið í tilvistarkreppu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Árni Þór Sigurðsson segir VG algerlega á móti þátttöku í hernaðarlegum umsvifum innan Evrópusambandsins. Mynd/Pjetur
Árni Þór Sigurðsson segir VG algerlega á móti þátttöku í hernaðarlegum umsvifum innan Evrópusambandsins. Mynd/Pjetur
Atlantshafsbandalagið hefur átt í tilvistarkreppu og hefur verið að leita leiða til að réttlæta tilveru sína, segir Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og formaður utanríkismálanefndar Alþingis um hugleiðingar Anders Fogh Rasmussens, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Fogh reifaði hugmyndir sínar um aukið samstarf milli Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins í viðtali við Evrópusambandið í danska blaðinu Berlingske Tidende í dag.

Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins verður haldinn í nóvember. Fogh segir í samtali við Berlingske Tidende að hann geri sér vonir um að fyrir þann tíma verði hægt að vinna einhverjar hugmyndir að því hvernig auknu samstarfi um uppbyggingu á sviði varnarmála yrði háttað. Árni Þór á von á því að ef af slíkri hugmyndavinnu yrði myndi það verða rætt á Íslandi vegna þess að Ísland á aðild að Atlantshafsbandalaginu.

Árni tekur skýrt fram að hann og Vinstri grænir séu alfarið á móti hernaðarumsvifum. „Við viljum ítreka andstöðu okkar við hverskonar hernaðarbrölt og andstöðu okkar við að undirgangast sameiginlega hernaðarstefnu Evrópusambandsins. Það höfum við skrifað undir og það er í samþykkt Alþingis varðandi Evrópusambandsumsóknina frá því í fyrra. Við höfum allan fyrirvara og munum ekki gangast undir sameiginlega hernaðarstefnu og munum ekki taka þátt í sameiginlegum her Evrópusambandsins, jafnvel þótt að af aðild yrði. Enda erum við herlaust land," segir Árni.






Tengdar fréttir

Vill efla samstarf NATO og ESB

Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, vill efla samstarf bandalagsins og Evrópusambandsins á sviði varnarmála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×