Atlantshafsbandalagið í tilvistarkreppu Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. ágúst 2010 15:58 Árni Þór Sigurðsson segir VG algerlega á móti þátttöku í hernaðarlegum umsvifum innan Evrópusambandsins. Mynd/Pjetur
Atlantshafsbandalagið hefur átt í tilvistarkreppu og hefur verið að leita leiða til að réttlæta tilveru sína, segir Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og formaður utanríkismálanefndar Alþingis um hugleiðingar Anders Fogh Rasmussens, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Fogh reifaði hugmyndir sínar um aukið samstarf milli Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins í viðtali við Evrópusambandið í danska blaðinu Berlingske Tidende í dag. Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins verður haldinn í nóvember. Fogh segir í samtali við Berlingske Tidende að hann geri sér vonir um að fyrir þann tíma verði hægt að vinna einhverjar hugmyndir að því hvernig auknu samstarfi um uppbyggingu á sviði varnarmála yrði háttað. Árni Þór á von á því að ef af slíkri hugmyndavinnu yrði myndi það verða rætt á Íslandi vegna þess að Ísland á aðild að Atlantshafsbandalaginu. Árni tekur skýrt fram að hann og Vinstri grænir séu alfarið á móti hernaðarumsvifum. „Við viljum ítreka andstöðu okkar við hverskonar hernaðarbrölt og andstöðu okkar við að undirgangast sameiginlega hernaðarstefnu Evrópusambandsins. Það höfum við skrifað undir og það er í samþykkt Alþingis varðandi Evrópusambandsumsóknina frá því í fyrra. Við höfum allan fyrirvara og munum ekki gangast undir sameiginlega hernaðarstefnu og munum ekki taka þátt í sameiginlegum her Evrópusambandsins, jafnvel þótt að af aðild yrði. Enda erum við herlaust land," segir Árni.
Tengdar fréttir Vill efla samstarf NATO og ESB Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, vill efla samstarf bandalagsins og Evrópusambandsins á sviði varnarmála. 29. ágúst 2010 08:00 Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Fleiri fréttir Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand Sjá meira
Vill efla samstarf NATO og ESB Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, vill efla samstarf bandalagsins og Evrópusambandsins á sviði varnarmála. 29. ágúst 2010 08:00