Innlent

Fyrsti vinningur gæti orðið 1,6 milljarðar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Potturinn gekk ekki út í Víkingalottóinu í kvöld og verður því þrefaldur næst. Samkvæmt upplýsingum frá Íslenskri getspá þýðir þetta að potturinn geti farið upp í 1,6 milljarða króna.

Einn var með fimm réttar tölur í réttri röð í Jókernum og hlaut hann tvær milljónir króna í verðlaun. Sá miði var seldur í verslun N1 í Kópavogi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×