Innlent

Norðmenn hafa ekkert tilkynnt um loðnuveiðar

Kortið sýnir svæðið sem skipin halda sig á.
Kortið sýnir svæðið sem skipin halda sig á.

Norski loðnuskipaflotinn, sem nú er í íslenskri lögsögu austur af landinu, hefur ekki tilkynnt Landhelgisgæslunni um neinn afla, en sum skipanna eru búin að vera á miðunum í tæpan sólarhring.

25 skip hafa leyfi til að veiða í einu, en auk þeirra bíða fjögur átekta, eftir að eitthvert þeirra fylli sig og haldi heimleiðis. Landhelgisgæslan fylgist með veium Norðmanna bæði úr lofti og af sjó og mun meðal annars kanna veiðarfæri og afla skipanna.

Norsku skipin mega veiða rúmlega 28 þúsund tonn af loðnu í lögsögunni að þesu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×