Maður á áttræðisaldri dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir misnotkun 3. febrúar 2010 13:36
Karlmaður á áttræðisaldri var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir kynferðisbrot gegn stúlku sem þá var fjórtán ára með því að hafa frá hausti eða vetri 2001, til þess dags er stúlkan varð 18 ára, tælt hana með gjöfum, meðal annars peningum, skartgripum og fatnaði, og með því að nýta sér yfirburði sína gagnvart stúlkunni vegna aldurs- og þroskamunar, til að hafa við sig nánast daglega samræði og önnur kynferðismök. Stúlkan kvaðst hafa séð ákærða fyrst árið 2000 þegar hún var 13 ára og að vinna í kjötborði Hagkaupa á Smáratorgi, en þangað hefði maðurinn komið að versla. Síðar hefði hún verið á leið heim til sín fótgangandi í vondu veðri og illa klædd þegar ákærði hefði stöðvað bifreið sína og boðið henni far. Maðurinn hefði við sama tækifæri boðið henni vinnu, gefið henni símanúmer sitt og 5000 krónur í peningum. Sagðist brotaþoli halda að þetta hefði verið í september árið 2000. Einhverju síðar hefði ákærði haft samband við hana og farið með hana í skartgripabúð þar sem hún hefði mátt velja sér gjöf. Þá hefði ákærði haldið áfram að gefa henni gjafir og peninga. Fljótlega hefði ákærði farið að bjóða henni heim til sín og meðal annars boðið henni að nota ljósabekk, sem hann hefði verið með á heimili sínu. Stúlkan kvaðst hafa átt kynferðislegt samneyti við manninn nánast daglega frá því að hún var 13 ára til tvítugs, það er til vorsins 2007, en þá hefðu þau hist síðast og stundað kynlíf. Þegar hún var 14 ára hefði hún farið að neyta fíkniefna, en hún sagðist hafa deyft sig með fíkniefnum áður en hún heimsótti manninn. Hún sagði að maðurinn hefði vitað af fíkniefnaneyslu hennar. Þá sagðist stúlkan hafa smitast af klamydíu hjá manninum, en það hefði gerst áður en hún fór að stunda kynlíf með öðrum mönnum en honum. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness segir að maðurinn eigi sér engar málsbætur. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ákærði braut gróflega og ítrekað gegn ungri stúlku á viðkvæmu aldurs- og þroskaskeiði hennar. Þá er litið til þess að brot mannsins var viðvarandi og stóð yfir í langan tíma. Mátti honum vera ljóst hversu alvarlegar afleiðingar atferli hans hlaut að hafa fyrir líf og sálarheill brotaþola eins og segir í dómi. Fangelsisdómur mannsins er óskilorðsbundinn.
Tengdar fréttir Öldungur í Kópavogi kærður fyrir kynferðislega misnotkun 75 ára gamall karlmaður úr Kópavogi hefur verið kærður til lögreglunnar fyrir að misnota stúlku kynferðislega á átta ára tímabili, frá því því að hún var tólf ára til tvítugs. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti við Vísi að málið væri til rannsóknar. 25. apríl 2008 15:38 Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira
Öldungur í Kópavogi kærður fyrir kynferðislega misnotkun 75 ára gamall karlmaður úr Kópavogi hefur verið kærður til lögreglunnar fyrir að misnota stúlku kynferðislega á átta ára tímabili, frá því því að hún var tólf ára til tvítugs. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti við Vísi að málið væri til rannsóknar. 25. apríl 2008 15:38