Viðkvæm starfsemi sem þarf frið 3. febrúar 2010 04:30 Nauteyri Mikið land fylgir jörðinni Nauteyri sem blasir við til hægri þegar komið er vestur yfir Steingrímsfjarðarheiði. MYnd/Fasteignamiðstöðin
Hraðfrystihúsið Gunnvör í Hnífsdal hefur gert Strandabyggð tilboð í jörðina Nauteyri innst í Ísafjarðardjúpi. „Við viljum tryggja að fá ekki einhverja ofan í okkur því þetta er viðkvæm starfsemi,“ segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Gunnvarar, sem rekur seiðaeldisstöð fyrir þorsk á Nauteyri og nýtir þar meðal annars heitt vatn úr borholu. Fyrirtækið hefur fram til þessa leigt aðstöðuna af Strandabyggð. Nauteyri á Langadalsströnd er gamall kirkjustaður. „Jörðin á nánast allt land frá fjöruborði milli Þverár og Hafnardalsár allt til vatnaskila á Ófeigsfjarðarheiði. Þar er nokkur fjöldi stöðuvatna, sum þeirra allstór, meðal annars Skúfnavötn og Mávavötn,“ segir um Nauteyri í sölulýsingu Fasteignamiðstöðvarinnar. „Gífurlegt landflæmi, óþrjótandi vatn í ám og vötnum og stórbrotin náttúrufegurð gera Nauteyri eina eftirsóknarverðustu jarðeign á Vestfjörðum“, segir enn fremur um þessa miklu jörð sem talin er vera um 5.500 hektarar. Samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnarinnar mun Strandabyggð nú undirbúa gagntilboð til Gunnvarar. - gar
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fleiri fréttir Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Sjá meira