Malbik komið yfir Melrakkasléttu 30. ágúst 2010 12:41 Þórshöfn.
Umdeildur vegur þvert yfir Melrakkasléttu, svokölluð Hófaskarðsleið, hefur loks verið opnaður umferð, en verkið tafðist um heilt ár vegna deilna Vegagerðar við bónda, sem vildi ekki að síðasti spottinn færi um land sitt. Leiðin milli Akureyrar og Þórshafnar styttist við þetta um 54 kílómetra og leiðin til Raufarhafnar um 21 kílómetra.Vegarlagningin var langt komin í fyrrasumar þegar Vegagerðin tapaði í Hæstarétti dómsmáli gegn bónda einum nálægt Kópaskeri sem stóð harður gegn því að síðasti spottinn færi um land sitt. Þetta varð til þess að finna þurfti nýtt vegarstæði og sprengja skarð í gegnum klapparholt, sem gárungar fyrir norðan hafa þegar uppnefnt Aulaskarð, enda þótti mörgum málið eitt stórt klúður.En nú er loksins búið að opna veginn, ári á eftir áætlun, en honum fylgir mikil samgöngubót, mest fyrir íbúa Þórshafnar, Þistilsfjarðar og Raufarhafnar, sem framvegis þurfa á suðurleið ekki að aka á malarvegi með ströndinni fyrir Melrakkasléttu heldur geta nú brunað á rennisléttu slitlagi þvert yfir Sléttuna. Þá leysir nýi vegurinn einnig Öxarfjarðarheiði af.Þetta er jafnframt ein viðamesta vegagerð sem staðið hefur yfir hérlendis á undanförnum árum. Haukur Jónsson, hjá Vegagerðinni á Akureyri, segir verkið í heild kosta hátt í tvo milljarða króna, þar af kostaði Hófaskarðsleið, sem Héraðsverk vann, um 1.500 milljónir króna, en leggurinn út á Raufarhöfn, sem KNH-verktakar unnu, kostaði um 400 milljónir króna. Haukur segir ekki liggja fyrir hvaða viðbótarkostnaður lagðist á verkið vegna málaferlanna.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Fleiri fréttir Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Sjá meira