Erlent

Flytja út vopn fyrir milljarða

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mynd/ afp
Mynd/ afp
Vopnaframleiðendur í Noregi hafa þénað ríkulega á stríðunum í Afganistan og Írak. Nýjar sölutölur benda til þess að vopnaútflutningur frá Noregi hafi þrefaldast frá árinu 2004.

Vopnaframleiðendurnir Nammo og Kongsberg Gruppen hafa flutt út vopn fyrir 12,5 milljarða norskra króna á þessu tímabili. Upphæðin samsvarar 238 milljörðum íslenskra króna. Samanlögð árleg velta fyrirtækjanna er hins vegar töluvert meiri, eftir því sem fram kemur í norska blaðinu Dagens Næringsliv.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×