Innlent

Safna gömlum símtækjum og styrkja SAFT

GSM notendur geta nú skilað gömlum símtækjum í söfnunarkassa í verslunum Vodafone og sýnt þannig í verki ábyrgð gagnvart umhverfinu.

Vodafone í samstarfi við Græna framtíð kemur símtækjunum í endurnýtingu hjá viðurkenndum aðilum erlendis, sem lagfæra tækin eða búa til ný með því að sameina íhluti úr nokkrum tækjum í eitt. Erlendir samstarfsaðilar greiða fyrir gömlu tækin og mun allur ávinningur Vodafone af verkefninu renna til SAFT, vakningarátaks um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi.

Markmiðið með samstarfinu er að efla umhverfisvitund og stuðla að almennri endurnýtingu og endurvinnslu á raftækjum hér á landi. Þá vill Vodafone fylgja eftir WEEE tilskipun Evrópusambandsins (Waste Electrical and Electronic Equipment) um rétta meðhöndlun á rafeindaúrgangi og tryggja umhverfisvæna starfshætti.

Græn framtíð mun annast flutning á símunum fyrir Vodafone til vottaðra endurnýtingarfyrirtækja víða um heim. Með endurnýtingu er hægt að fá heilt smáraftæki með litlum kostnaði því þá þarf ekki að búa til glænýtt tæki. Heil tæki eru oft seld til þróunarlanda fyrir brot af upphaflegu verði og koma þar að góðum notum við uppbyggingu á innviðum samfélaga.

Bjartmar Alexandersson hjá Grænni framtíð segir að þeir farsímar sem eru heillegir að mestu sé hægt að laga og nota aftur. „Í GSM símum er einnig að finna margvísleg verðmæt efni sem hægt er að nota við framleiðslu á öðrum búnaði. Einnig er í símunum spilliefni, svo sem blý og arsenik. Þessi efni valda engum skaða þegar farsíminn er í notkun en þau geta valdið skaða á umhverfinu ef gamall og ónýtur farsími er ekki endurnýttur með réttum hætti. Því er mikilvægt að koma slíkum búnaði í endurnýtingu," segir Bjartmar.

Hrannar Pétursson hjá Vodafone segist binda vonir við að viðskiptavinir Vodafone taki þátt í verkefninu og að vonar að þeir nái að safna þúsundum gamalla símtækja. „Við ætlum líka að horfa inn á við og hvetja starfsmenn okkar til leita í öllum hirslum - bæði heima hjá sér og í fyrirtækinu sjálfu - að gömlum símtækjum, aukahlutum og netlyklum. Með því getur fólk látið gott af sér leiða í tvennum skilningi; annars vegar til hagsbóta fyrir umhverfið og hins vegar með því að styðja frábært starf SAFT," segir Hrannar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×