Safna gömlum símtækjum og styrkja SAFT 27. september 2010 10:12
GSM notendur geta nú skilað gömlum símtækjum í söfnunarkassa í verslunum Vodafone og sýnt þannig í verki ábyrgð gagnvart umhverfinu. Vodafone í samstarfi við Græna framtíð kemur símtækjunum í endurnýtingu hjá viðurkenndum aðilum erlendis, sem lagfæra tækin eða búa til ný með því að sameina íhluti úr nokkrum tækjum í eitt. Erlendir samstarfsaðilar greiða fyrir gömlu tækin og mun allur ávinningur Vodafone af verkefninu renna til SAFT, vakningarátaks um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Markmiðið með samstarfinu er að efla umhverfisvitund og stuðla að almennri endurnýtingu og endurvinnslu á raftækjum hér á landi. Þá vill Vodafone fylgja eftir WEEE tilskipun Evrópusambandsins (Waste Electrical and Electronic Equipment) um rétta meðhöndlun á rafeindaúrgangi og tryggja umhverfisvæna starfshætti. Græn framtíð mun annast flutning á símunum fyrir Vodafone til vottaðra endurnýtingarfyrirtækja víða um heim. Með endurnýtingu er hægt að fá heilt smáraftæki með litlum kostnaði því þá þarf ekki að búa til glænýtt tæki. Heil tæki eru oft seld til þróunarlanda fyrir brot af upphaflegu verði og koma þar að góðum notum við uppbyggingu á innviðum samfélaga. Bjartmar Alexandersson hjá Grænni framtíð segir að þeir farsímar sem eru heillegir að mestu sé hægt að laga og nota aftur. „Í GSM símum er einnig að finna margvísleg verðmæt efni sem hægt er að nota við framleiðslu á öðrum búnaði. Einnig er í símunum spilliefni, svo sem blý og arsenik. Þessi efni valda engum skaða þegar farsíminn er í notkun en þau geta valdið skaða á umhverfinu ef gamall og ónýtur farsími er ekki endurnýttur með réttum hætti. Því er mikilvægt að koma slíkum búnaði í endurnýtingu," segir Bjartmar. Hrannar Pétursson hjá Vodafone segist binda vonir við að viðskiptavinir Vodafone taki þátt í verkefninu og að vonar að þeir nái að safna þúsundum gamalla símtækja. „Við ætlum líka að horfa inn á við og hvetja starfsmenn okkar til leita í öllum hirslum - bæði heima hjá sér og í fyrirtækinu sjálfu - að gömlum símtækjum, aukahlutum og netlyklum. Með því getur fólk látið gott af sér leiða í tvennum skilningi; annars vegar til hagsbóta fyrir umhverfið og hins vegar með því að styðja frábært starf SAFT," segir Hrannar.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Sjá meira