Innlent

Umsýsla málefna fatlaðra gagnrýnd

Landssamtökin þroskahjálp segja fjáframlög ríkis ekki hafa dugað fyrir grunnþjónustu við fatlaða einstaklinga. Ríkisendurskoðun gagnrýnir stjórnun í málefnum fatlaðra í nýrri skýrslu.
Landssamtökin þroskahjálp segja fjáframlög ríkis ekki hafa dugað fyrir grunnþjónustu við fatlaða einstaklinga. Ríkisendurskoðun gagnrýnir stjórnun í málefnum fatlaðra í nýrri skýrslu.

Ríkisendurskoðun gagnrýnir hvernig haldið er utan um málefni fatlaðra. Í nýrri skýrslu er meðal annars gagnrýnt að ekki liggi fyrir formlega samþykkt heildarstefna um þennan málaflokk og að fjárveitingar taki ekki mið af reglulegu mati á þörf fyrir þjónustu. Einnig sé eftirliti með þjónustunni ábótavant og því ekki tryggt að jafnræði ríki meðal þjónustuþega.

Svæðisskrifstofur í umboði félags- og tryggingamálaráðuneytisins sjá um að veita þjónustu við fatlaða. Stjórn Landssamtakanna Þroskahjálpar segir skýrsluna áfellisdóm yfir Alþingi og félags- og tryggingamálaráðuneytinu.

„Ríkisendurskoðun tekur í raun undir það sem við höfum bent stjórnvöldum á í mörg ár,“ segir Gerður A. Árnadóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar. „Eftirlitið með þjónustunni er óviðunandi og árum saman hafa fjárveitingar ekki verið í neinu samræmi við þörfina en þarna er þó einungis um að ræða grunnþjónustu í daglegu lífi, engan lúxus,“ segir Gerður. „Þetta er sérstaklega alvarlegt því þarna er um að ræða einstaklinga sem geta ekki staðið vörð um sín réttindi.“

Áformað er að flytja málaflokkinn alfarið frá ríki til sveitarfélaga í byrjun ársins 2011. Ráðuneytið mun þó bera ábyrgð á yfirstjórn hans og hafa eftirlit með þjónustunni. Ríkisendurskoðun telur ekki liggja fyrir mat á því hvaða ávinningi flutningurinn mun skila og telur það ámælisvert. Félagsmálaráðherra segir flutning málaflokksins yfir til sveitarfélaganna hins vegar skapa tækifæri til leiðréttingar á þeim veikleikum sem kunni að vera á stjórnkerfinu.

„Nýtt stjórnkerfi mun taka við af Svæðisskrifstofunum og ríkið mun leggja umtalsverða fjármuni í að greiða fyrir þeirri yfirfærslu og mæta uppsafnaðri þjónustuþörf,“ segir Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra. „Þetta mun skila þeim ávinningi að þjónustan flyst nær þeim sem þurfa hennar með.“ Ráðherra segir jafnframt að ráðuneytið muni taka skýrsluna til athugunar.

„Þarna eru gerðar athugasemdir við skipulag þessa málaflokks til áratuga og við munum taka það til vandlegrar athugunar. Á næsta þingi verður lagt fram frumvarp hvernig eftirliti með réttindagæslu fatlaðra einstaklinga og þjónustunni við þá verði hagað. Við vinnum í samvinnu við hagsmunasamtök fatlaðra enda lykilatriði að notendur séu við borðið þegar verið er að skipuleggja þjónustuna.“ heida@frettabladid.is

.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×