Fylgi stjórnarflokka fellur 19. mars 2010 06:15
Sjálfstæðisflokkurinn er á ný langstærsti stjórnmálaflokkur landsins, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins sem gerð var í gærkvöldi. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur stuðnings 40,3 prósenta þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni og fengi 27 þingmenn kjörna yrðu þetta niðurstöður kosninga. Flokkurinn fékk 23,7 prósent atkvæða í þingkosningum 25. apríl í fyrra, og 16 þingmenn kjörna. Flokkurinn hefur ekki mælst með svo mikið fylgi í könnunum Fréttablaðsins frá því 23. febrúar 2008, þegar 40,1 prósent studdi flokkinn. Stjórnarflokkarnir tapa miklu fylgi frá síðustu könnun Fréttablaðsins. Samfylkingin nýtur stuðnings 23,1 prósents kjósenda, og Vinstri græn 20,6 prósenta. Alls sögðust 43,7 prósent aðspurðra myndu kjósa annan hvorn stjórnarflokkanna, sem fengju samtals 28 þingmenn samkvæmt könnuninni og myndu þar með missa þingmeirihlutann. Þegar spurt var um stuðning við ríkisstjórnina sögðust 38,9 prósent þeirra sem afstöðu tóku styðja stjórnina, en 61,1 prósent sagðist ekki styðja stjórnina. Konur eru líklegri til að styðja stjórnina en karlar, 40,5 prósent kvenna styðja stjórnina en 37,3 prósent karla. Framsóknarflokkurinn bætir ekki við sig fylgi þrátt fyrir mikið fylgistap stjórnarinnar. Flokkurinn mælist með stuðning 13,3 prósenta þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni. Borgarahreyfingin nýtur stuðnings 2,1 prósents kjósenda, og 0,6 prósent sögðust myndu kjósa Hreyfinguna. - bj /
Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Fleiri fréttir Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Sjá meira