Innlent

Kolmunnaskipin snúa heim

Íslensku kolmunnaskipin, sem fóru til veiða vestur af Skotlandi nýverið, eru nú á heimleið eða komin heim, mörg hver með aðeins slatta um borð. Eftir nokkra góða daga, fór veður versnandi og hefur verið slæmt á veiðislóðinni dögum saman.

Síðan hélt kolmunninn inn í skoska lögsögu og var þá ekki lengur yfir neinu að hanga. Nú verður fylgst með göngu kolmunnans í von um að hann fari að ganga inn í Færeysku lögsöguna, þar sem íslensku skipin hafa veiðiheimildir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×