Innlent

Tíu gefa kost á sér í Ísafjarðarbæ

Frá Ísafirði.
Frá Ísafirði.
Tíu gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ sem fram fer laugardaginn 13. febrúar. Í kosningunum 2006 fékk Sjálfstæðisflokkurinn fjóra bæjarfulltrúa af níu. Tveir þeirra, Halldór Halldórsson bæjarstjóri og Birna Lárusdóttir, gefa ekki kost á sér.

Í prófkjörinu skal kjósa 6 frambjóðendur, hvorki fleiri né færri. Þátttaka í prófkjörinu er heimil öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðarbæ sem þar eru búsettir. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst að morgni fimmtudagsins 28 janúar og stendur til kl. 18 föstudaginn 12. febrúar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×