Fermdist ásamt dóttur sinni og tvíburasonum 31. mars 2010 06:00 Fermingarbörnin fjögur. Helena Rós, Ástríður Rós, Askur Máni og Breki Blær héldu fjórfalda fermingarveislu á sunnudaginn fyrir vini og vandamenn.Mynd / Helena Rós Sigmarsdóttir
Þjóðkirkjan Séra Bragi Ingibergsson í Víðistaðakirkju blessaði ellefu fermingarbörn á sunnudaginn var. Þar af voru fjögur úr sömu fjölskyldunni, og það elsta að nálgast fertugt. „Þetta var fyrst og fremst dagur strákanna og við reyndum að gera ekkert til að skyggja á það,“ segir Helena Rós Sigmarsdóttir, 37 ára, sem fermdist á sunnudaginn ásamt Ástríði Rós Erlendsdóttur, sautján ára dóttur sinni, og þrettán ára tvíburasonum sínum, Aski Mána og Breka Blæ Stefánssonum. Á unglingsárum hafði Helena sterkar skoðanir sem hindruðu að hún léti ferma sig – auk þess sem fermingarfræðslan var á óárennilegum tíma, klukkan átta á miðvikudagsmorgnum. Helena segist hafa velt fermingu fyrir sér undanfarin fimmtán ár. „Og nú þegar ég var að fara að ferma yngstu börnin mín hugsaði ég með mér að það væri núna eða aldrei,“ segir hún. Helena nemur lögfræði við Háskóla Íslands og segir að þegar hún tók heimspekikúrs nýlega hafi ýmsar spurningar leitað á hana. „Ég ákvað að það væri best að hafa þetta spil á hendi þegar yfir lýkur, þegar ég fer og stend andspænis almættinu. Ég hef öllu að tapa ef ég er ekki með trúna en ég hef engu að tapa með hana.“ Dóttir hennar hafi síðan ákveðið að slá til líka á elleftu stundu. Mæðgurnar sóttu þó ekki fermingarfræðslu, enda skólaðri í skóla lífsins en krakkar á fermingaraldri, og stóðu ekki heldur kyrtilklæddar uppi við altarið alla messuna eins og hin fermingarbörnin. „Ég hugsa að sumir í kirkjunni hafi verið svolítið hissa þegar tvær fuglahræður úti í sal stóðu upp og hentust upp í ferminguna,“ segir Helena. Að vígslunni lokinni var slegið upp fjórfaldri fermingarveislu fyrir nánustu ættingja og vini. Gjafakostnaður sligar þó ekki fjölskylduna því hún ákvað að skella sér í skíðaferð til Austurríkis fyrir ferminguna og láta ferðina auk veislunnar nægja sem viðurgjörning. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Innlent Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Innlent Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Innlent „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Innlent Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Innlent Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Erlent Átján ára sótti áfengissendingu Innlent Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Enn varað við umferðartöfum sökum framkvæmda á Hringvegi Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Sjá meira