Enski boltinn

Tap hjá Man Utd - Varamennirnir hetjur Everton

Elvar Geir Magnússon skrifar
Leikmenn Everton fagna jöfnunarmarkinu.
Leikmenn Everton fagna jöfnunarmarkinu.

Everton gerði sér lítið fyrir og vann 3-1 sigur á Englandsmeisturum Manchester United í dag. Þetta er í fyrsta sinn á tímabilinu sem United tapar leik eftir að hafa komist yfir.

Búlgarinn Dimitar Berbatov kom United yfir á 16. mínútu með þrumuskoti sem hafnaði í þverslánni og inn. Aðeins þremur mínútum síðar jafnaði Diniyar Bilyaletdinov með hnitmiðuðu skoti.

Everton komst yfir á 76. mínútu 2-1, það mark skoraði hinn tvítugi  Dan Gosling. Lokaorðið átti heimamaðurinn Jack Rodwell sem hafði komið inn sem varamaður eins og Gosling.

Góður sigur Everton en þetta var fyrsta tap United í átta leikjum og missti liðið þarna af dýrmætum stigum í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×