ASÍ: Alþingi verður að ljúka Icesave deilunni 24. mars 2010 17:57 Frá ársfundi ASÍ í haust. Mynd/GVA
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahags- og atvinnumála. Hún segir brýnt að ljúka Icesave deilunni sem fyrst. Auk þess verði stjórnvöld að gera átak í mannaflsfrekum framkvæmdum. Í ályktun miðstjórnar ASÍ segir að ríkisstjórn og Alþingi verði að gera sér grein fyrir því að kaupmáttur ráðstöfunartekna almennings hefur lækkað verulega síðustu misseri. Atvinnuleysi mælist nú hærra en nokkru sinni fyrr, eða 9,3% sem jafngildi því að rúmlega 15 þúsund manns séu án atvinnu. „Þessi staða er með öllu ólíðandi og aðgerðaleysi óásættanlegt með öllu.“ Miðstjórn ASÍ telur að nú skipti höfuðmáli að koma hjólum efnahags- og atvinnulífsins í gang aftur og auka verðmætasköpun í landinu þannig að hægt verði að ráða fólk í vinnu og hækka laun. Einungis þannig geti þjóðin unnið sig út úr þeim mikla efnahagsvanda sem hún glími nú við. Til þess þurfi allir að leggja sitt af mörkum. Allir axli sinn hluta af ábyrgðinni „Miðstjórn ASÍ krefst þess að allir axli sinn hluta af ábyrgðinni og vinni að þessu sameiginlega markmiði. Stjórnvöld, bæði ríkisstjórn og sveitarstjórnir, bera sérstaka ábyrgð á að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að eyða óvissu og stuðla að frekari uppbyggingu og fjárfestingum,“ segir í ályktuninni. Miðstjórn segir brýnt að Alþingi ljúki hinni erfiðu Icesave deilu sem allra fyrst til að auðvelda aðgengi að erlendu fjármagni til uppbyggingar og stuðla að hraðari vaxtalækkun. Hraða verði vinnu vegna undirbúnings stórframkvæmda, sérstaklega í skipulagsmálum. „Þá verða stjórnvöld að gera átak í mannaflsfrekum framkvæmdum, hvort heldur sem er í eigin nafni eða einkaframkvæmdir, og þiggja tilboð lífeyrissjóðanna um fjármögnun slíkra verkefna.“
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Ætla aftur að mála regnbogafánann Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent Fleiri fréttir Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Sjá meira