Lífið

Gott hjarta Dags Kára frumsýnt

Þríeykið Dagur Kári ásamt þeim Paul Dano og Brian Cox. Myndin The Good Heart verður frumsýnd á föstudaginn.
Þríeykið Dagur Kári ásamt þeim Paul Dano og Brian Cox. Myndin The Good Heart verður frumsýnd á föstudaginn.

Loksins, loksins, kynnu einhverjir að hugsa því á föstudaginn verður kvikmynd Dags Kára, The Good Heart, frumsýnd. Myndarinnar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda Dagur Kári einn fremsti kvikmyndagerðarmaður okkar Íslendinga. Töluvert hefur verið skrifað um The Good Heart en upphaflega stóð til að þeir Tom Waits og Ryan Goosling myndu leika aðalhlutverkin í þessari mynd. En sökum þess að ekki tókst að samræma dagskrá þeirra var fallið frá þeirri hugmynd.

Þeir sem komu í staðinn eru engu síðri en það eru breski stórleikarinn Brian Cox og bandaríska ungstirnið Paul Dano.

The Good Heart segir frá rosknum bareiganda að nafni Jacques sem á í vandræðum með bæði skap sitt og hjarta. Þegar Jacques hittir hinn heimilislausa Lucas á sjúkrahúsi eftir enn eitt hjartaáfallið ákveður gamli maðurinn að taka Lucas upp á sína arma og kenna honum hvernig á að reka bar í þeirri von að Lucas muni taka við af honum þegar hann deyr.

Meðal annarra leikara má nefna franska ungstirnið Isild Le Besco en þrátt fyrir að flestir leikaranna séu erlendir eru áhorfendur beðnir um að fylgjast með íslenskum statistum; meðal þeirra eru kaffihúsaeigandinn Friðrik Weisshappel og listamaðurinn Haraldur Jónsson.

Dagur Kári verður í viðtali við tímaritið Föstudag á föstudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.