Starfsmenn biskupsstofu gáfu mótmælanda kaffi Valur Grettisson skrifar 6. september 2010 14:11 Mótmælandinn mótmælir í hljóði fyrir utan biskupsstofu. „
Við fórum þarna út og gáfum honum kaffi," segir Elín Jóhannesdóttir hjá fræðslusviði biskupsstofu á Laugaveginum, en hún bauð mótmælanda sem þar stendur, upp á kaffibolla. Það gerði hún ásamt konu sem rekur verslun í sama húsi. „Ég bauð honum svo inn en það vildi hann ekki. Hann vildi kom sínum skilaboðum á framfæri hljóðlega og með þessum hætti," segir Elín sem bætir við að veðrið sé heldur hráslagaralegt og því hafi hún boðið honum inn í hlýjuna. Maðurinn hefur staðið fyrir utan biskupsstofu í dag með skilti sem á stendur „Nýjan Byskup". Hann hefur komið sínum mótmælum áleiðis á hljóðlegan hátt og vill bersýnilega að biskup segi af sér. „Þetta er greinilega sómamaður. Ég spjallaði aðeins við hann," segir Elín sem sárnar ekki gagnrýnin og tekur fram að fólk eigi rétt á að koma sínum sjónarmiðum áleiðis. „En við viljum engan hlaðkulda á biskupsstofu," segir hún um kaffigjöfina sem hefur væntanlega yljað mótmælandanum örlítið í köldu veðrinu. Þegar fréttamaður falaðist eftir því að ræða við hann neitaði hann honum um viðtal með þeim orðum að það væri litlu við skiltið að bæta. Þess má geta að mótmælandinn notar fornan rithátt á orðinu biskup. Rithátturinn byskup er því ekki rangur þó orðið sé almennt ekki ritað þannig í dag.
Tengdar fréttir Vill nýjan byskup Einn mótmælandi stendur fyrir utan Biskupsstofu á Laugaveginum og krefst þess, samvkæmt skilti sem hann heldur á, að nýr biskup taki við starfinu. 6. september 2010 13:36 Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira
Vill nýjan byskup Einn mótmælandi stendur fyrir utan Biskupsstofu á Laugaveginum og krefst þess, samvkæmt skilti sem hann heldur á, að nýr biskup taki við starfinu. 6. september 2010 13:36