Bæjaryfirvöld styðji álver í íbúakosningu 8. mars 2010 05:15 Álverið í Straumsvík Til að umdeild stækkun álversins geti orðið að veruleika þarf að leggja talsvert land til viðbótar undir verksmiðjuna og færa Reykjanesbrautina á kafla.
Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, vill að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði styðji við áform fyrirtækisins ef aftur verður efnt til íbúakosningar um stækkun álversins í Straumsvík. „Sem forstjóri álversins hlýt ég að lýsa áhyggjum af því hvaða áhrif önnur synjun í íbúakosningu gæti haft á áhuga eigenda fyrirtækisins fyrir því að fjárfesta frekar á Íslandi. Stuðningur bæjaryfirvalda myndi draga verulega úr þeim áhyggjum,“ segir Rannveig í svarbréfi til Bjarka Jóhannessonar, sviðsstjóra skipulagssviðs í Hafnarfirði. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri segir aðspurður að sér sé ekki ljóst hvort Alcan séu að biðja bæjaryfirvöld um stuðning í aðdraganda íbúakosningarinnar. „Við höfum litið svo á að það væri ósk íbúanna að þeir ættu að kjósa í þessu máli. Það hefur ekkert verið rætt að bæjaryfirvöld séu að gefa út einhverjar yfirlýsingar af eða á í þessu máli,“ segir bæjarstjórinn. Hafnfirðingar synjuðu naumlega í íbúakosningu 2007 deiliskipulagi sem gert hefði Alcan kleift að stækka álverið í Straumsvík í 460 þúsund tonn. Nokkuð er síðan tilskilinn fjöldi undirskrifta náðist til að láta bæinn endurtaka kosninguna. Bæjaryfirvöld og Alcan hafa átt í viðræðum um forsendur hennar. Í áðurnefndu bréfi segir Rannveig Rist að ótímabært sé að svara ýmsum spurningum sem bæjaryfirvöld hafa sett fram. Meðal annars eigi fyrirtækið ekki lengur forgang að orku sem það hafi áður verið búið að tryggja sér. Lúðvík segir það hafa verið mat bæjarráðs að bréf Rannveigar svaraði ekki með nægjanlega skýrum hætti þeim fyrirspurnum sem beint hafi verið til álversins og því hafi hann komið því til skila. „Þetta snýst meðal annars um hvort menn vilji fara fram með það skipulag sem er uppi eða hvort þeir telji ástæðu til að gera þar einhverjar breytingar á og hver sé hugur þeirra til að taka málið fyrir í kosningu núna því það er ekki hægt að fara fram með kosningar sem snúa að þriðja aðila nema í samráði við hann. Svörin í þeim efnum eru ekki nógu afdráttarlaus eins og málið hefur legið fyrir. Fyrsta skrefið er að það liggi ljóst fyrir um hvað á að kjósa ef það á að kjósa um málið aftur,“ segir Lúðvík Geirsson. gar@frettabladid.is Lúðvík Geirsson.
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Breskt herskip siglir um Hvalfjörð Innlent Fleiri fréttir Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Sjá meira