Námumennirnir geta nú talað við ástvini sína 30. ágúst 2010 08:15
Chílesku námumennirnir sem lokuðust í námagöngum á 700 metra dýpi á dögunum geta nú talað við fjölskyldur sínar í gegnum síma. Námumennirnir þrjátíu og þrír, sem sennilega verða lokaðir í prísund sinni fram að jólum, hafa nú fengið símalínu lagða til sín í gegnum göng og hefur símaklefa verið komið upp á yfirborðinu þar sem fjölskyldur þeirra bíða nú í röðum eftir að heyra í ástvinum sínum. Hver fjölskyldumeðlimur fær eina mínútu í símaklefanum og hafa sálfræðingar ráðlagt þeim að hafa símtölin öll á jákvæðu nótunum. Þessar gleðifréttir koma eftir að námamálaráðherra landsins hafði dregið úr vonum manna um að hægt væri að bjarga mönnunum fyrr en áætlað var. Sérfræðingar höfðu stungið upp á annarri björgunaraðferð og átti hún að taka um helmingi styttri tíma en sú sem nú er unnið eftir. Yfirvöld ætla þó að fara eftir hinni upprunalegu áætlun, sem felst í því að bora göng, um 66 sentimetra í þvermál niður til mannanna. Allt er gert til þess að gera mönnunum vistina í prísund sinni sem þægilegasta og hafa þeir nú fengið send föt til skiptanna og tónlistarspilara. Þá eru sérfræðingar frá bandarísku geimferðarstofnunninni á staðnum en þeir hafa sérþekkingu á að aðlaga menn að því að lifa við mikil þrengsli í langan tíma.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Fleiri fréttir Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Sjá meira