Innlent

Um hundrað vilja á Stjórnlagaþing

Framboðsfrestur til Stjórnlagaþings rennur út á mánudag. Framboðum hefur rignt inn síðustu daga en um hundrað manns hafa nú skráð sig til leiks.

Kosningar til stjórnlagaþings verða haldnar þann 27. nóvember næstkomandi en hver og einn kjörgengur Íslendingur mun geta kosið 25 frambjóðendur og raðað þeim í forgangsröð. Miðað er við að 25 manns muni skipa þingið en þeim getur fjölgað ef leiðrétta þarf vegna kynjasjónarmiða. Heimild er þá til þess að fjölga fulltrúum um allt að 6, í því skyni að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40%.

Ráðgefandi stjórnlagaþing mun síðan koma saman í síðasta lagi þann 15. febrúar á næsta ári til þess að endurskoða stjórnarskrá Íslands.

Líkt og fyrr segir rennur framboðsfrestur út á mánudag. Frambjóðendur þurfa að leggja fram vottuð meðmæli 30 til 50 kosningabærra manna, en eyðublöð fyrir frambjóðendur má finna á heimasíðu landskjörstjórnar, landskjor.is.

Þann 3.nóvember verða nöfn frambjóðenda, starfsheiti og sveitarfélag birt, en samkvæmt heimildum fréttastofu hafa um hundrað manns þegar sent inn umsókn.

Á alfræðiorðaritinu Wikipedía má finna lista yfir þá sem lýst hafa yfir framboði til þingsins. Listinn er langt því frá að vera tæmandi, en á honum eru 86 nöfn.

Athygli vekur að af þessum 86, eru einungis 16 aðilar sem ekki eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Tuttugu og sjö konur eru á listanum og þar má sjá nokkur landsfræg nöfn.

Meðal annars fyrrum ritstjóra DV þá Jónas Kristjánsson og Illuga Jökulsson auk útvarpsmannsins Sigurðar G. Tómassonar. Þá má sjá nöfn þeirra Silju Báru Ómarsdóttur aðjúnkts í stjórnmálafræði og Þorvalds Gylfasonar prófessors í hagfræði. Einng má sjá nafn Valgarðs Guðjónssonar sem er hvað best þekktur fyrir að hafa verið í hinni goðsagnakenndu pönkhljómsveit Fræbbblunum.

Meðal þeirra atriða sem skoðuð verða á þinginu eru undirstöður íslenskrar stjórnskipunar, hlutverk forseta lýðveldisins, sjálfstæði dómstóla og fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×