Um hundrað vilja á Stjórnlagaþing 15. október 2010 12:31
Framboðsfrestur til Stjórnlagaþings rennur út á mánudag. Framboðum hefur rignt inn síðustu daga en um hundrað manns hafa nú skráð sig til leiks. Kosningar til stjórnlagaþings verða haldnar þann 27. nóvember næstkomandi en hver og einn kjörgengur Íslendingur mun geta kosið 25 frambjóðendur og raðað þeim í forgangsröð. Miðað er við að 25 manns muni skipa þingið en þeim getur fjölgað ef leiðrétta þarf vegna kynjasjónarmiða. Heimild er þá til þess að fjölga fulltrúum um allt að 6, í því skyni að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40%. Ráðgefandi stjórnlagaþing mun síðan koma saman í síðasta lagi þann 15. febrúar á næsta ári til þess að endurskoða stjórnarskrá Íslands. Líkt og fyrr segir rennur framboðsfrestur út á mánudag. Frambjóðendur þurfa að leggja fram vottuð meðmæli 30 til 50 kosningabærra manna, en eyðublöð fyrir frambjóðendur má finna á heimasíðu landskjörstjórnar, landskjor.is. Þann 3.nóvember verða nöfn frambjóðenda, starfsheiti og sveitarfélag birt, en samkvæmt heimildum fréttastofu hafa um hundrað manns þegar sent inn umsókn. Á alfræðiorðaritinu Wikipedía má finna lista yfir þá sem lýst hafa yfir framboði til þingsins. Listinn er langt því frá að vera tæmandi, en á honum eru 86 nöfn. Athygli vekur að af þessum 86, eru einungis 16 aðilar sem ekki eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Tuttugu og sjö konur eru á listanum og þar má sjá nokkur landsfræg nöfn. Meðal annars fyrrum ritstjóra DV þá Jónas Kristjánsson og Illuga Jökulsson auk útvarpsmannsins Sigurðar G. Tómassonar. Þá má sjá nöfn þeirra Silju Báru Ómarsdóttur aðjúnkts í stjórnmálafræði og Þorvalds Gylfasonar prófessors í hagfræði. Einng má sjá nafn Valgarðs Guðjónssonar sem er hvað best þekktur fyrir að hafa verið í hinni goðsagnakenndu pönkhljómsveit Fræbbblunum. Meðal þeirra atriða sem skoðuð verða á þinginu eru undirstöður íslenskrar stjórnskipunar, hlutverk forseta lýðveldisins, sjálfstæði dómstóla og fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira