Forðast á að nota þvaglegg við rannsókn 4. september 2010 06:15 Þvagleggsmálið var tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands.
Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið fellst á það sjónarmið setts umboðsmanns Alþingis að ekki hafi verið gætt að grundvallarreglu um meðalhóf þegar þvagleggur var notaður í svonefndu þvagleggsmáli, sem upp kom hjá sýslumannsembættinu á Selfossi fyrir fáeinum árum. Þá telur ráðuneytið jafnframt að forðast eigi að nota þvaglegg til að taka þvagsýni í þágu rannsóknar sakamála. Mál konunnar, sem grunuð var um ölvunarakstur vorið 2007, vakti mikla athygli þegar í ljós kom að lögreglan á Selfossi þurfti að beita valdi til að taka þvagsýni. Lögregla fékk lækni til að setja upp þvaglegg til að taka sýni gegn vilja konunnar. Héraðsdómur komst í framhaldinu að þeirri niðurstöðu að lögreglan hefði ekki farið út fyrir sínar valdheimildir með því að láta setja upp þvaglegginn. Settur umboðsmaður Alþingis, Róbert R. Spanó, tók málið til athugunar að eigin frumkvæði, þar á meðal málsmeðferð lögreglu í tilefni af þvinguðum þvagsýnatökum og þá meðal annars hvort heimilt hefði verið að notast við þvaglegg. Umboðsmaður hófst handa með athugunina eftir frásagnir í fjölmiðlum af málinu. Konan hafði kvartað til ríkissaksóknara. Í svörum dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins til setts umboðsmanns kom meðal annars fram að forðast ætti að nota þvaglegg til að taka þvagsýni í þágu rannsóknar sakamáls. Þá taldi ráðuneytið að fallast megi á að í umræddu máli konu, sem sætt hafði slíku úrræði, hefði ekki verið gætt að grundvallarreglunni um meðalhóf. Þá hefði verið réttara að þeir lögreglumenn sem aðstoðuðu við töku þvagsýnisins hefðu allir verið kvenkyns ef unnt hefði verið að koma slíku við og þá í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar. Þá kom fram að ráðuneytið hefði óskað eftir því við ríkislögmann að hann tæki mál umræddrar konu til meðferðar, kæmi fram rökstudd krafa um slíkt. Í ljósi svara ráðuneytisins, og að því virtu að settur umboðsmaður hafði haft málið athugunar að eigin frumkvæði, taldi hann ekki tilefni til að aðhafast frekar. jss@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira