Úttekt ýfir upp deilu um strandveiðarnar 25. janúar 2010 03:30 í höfn Alls voru 595 leyfi til strandveiða veitt en 554 þeirra voru nýtt af 529 útgerðum. 3.400 tonn af þorski komu á land.
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hefur gott sem tekið af allan vafa um að strandveiðar eru komnar til að vera. Niðurstöður úttektar Háskólaseturs Vestfjarða (HV) á framgangi og áhrifum veiðanna túlkar ráðherra sem svo að reynsla af veiðunum sé góð. Smábátasjómenn hvetja til þess að veiðarnar verði festar í sessi á meðan útgerðir innan LÍÚ finna þeim allt til foráttu. Í úttekt HV er meðal niðurstaðna að ánægja sé meðal strandveiðimanna með veiðarnar og fyrirkomulag þeirra. „Þó tilfinningar séu blendnari meðal annarra hagsmunaaðila er þó meirihlutinn á því að strandveiðarnar geti verið leið til að styrkja hinar dreifðu byggðir landsins,“ segir í kynningu. Sjávarútvegsráðherra segir að næsta skref sé að vinna frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða sem lagt verði fyrir Alþingi á næstunni. „Tekið verður mið af þeim lærdómi sem hér hefur verið safnað saman við gerð frumvarpsins og allar líkur benda til þess að lagt verði til að strandveiðarnar séu komnar til að vera og því verður ekki lagt til nú að heimild til þeirra verði sett til bráðabirgða líkt og var gert á síðasta ári.“ Þess má geta að Jón Bjarnason staðfesti í viðtali við Fréttablaðið á aðalfundi LÍÚ í lok október að strandveiðar væru komnar til að vera, aðeins væri eftir að sníða ýmsa vankanta af fyrirkomulagi veiðanna. Skýrsluhöfundar telja að markmiðum hafi verið náð með veiðunum. Þar á meðal að gefa fleiri en handhöfum kvóta möguleika á takmörkuðum veiðum í atvinnuskyni, nýliðun og að auðvelda fólki að afla sér reynslu og þekkingar. Samkvæmt könnun Háskólaseturs Vestfjarða höfðu áttatíu prósent þeirra, sem þær stunduðu, áður gert út bát, fjörutíu prósent útgerðanna réðu yfir kvóta og 24 prósent höfðu áður selt allan sinn kvóta. „Skýrslan staðfestir að strandveiðarnar eru sóun á verðmætum,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, á heimasíðu sambandsins. Hann segir sóun hafa einkennt þessar veiðar hvar sem á er litið. Allt of margir bátar hafi verið að veiðum með tilheyrandi offjárfestingu. Þá standist gæði stórs hluta strandveiðiaflans ekki samanburð við annan afla sem berst að landi. Svör kaupenda staðfesti það. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira