Viðskiptavinir bíða óþreyjufullir eftir endurreikningi lána Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. október 2010 11:35 Árni Páll Árnason ætlar að leggja fram frumvarpið á föstudag. Mynd/ GVA.
Reiknað er með að efnahags- og viðskiptaráðherra leggi fram frumvarp í tengslum við gengisdóm Hæstaréttar á Alþingi á föstudag, samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, boðaði frumvarpið þegar að dómur féll í Hæstarétti seinni partinn í september. Með því er gert ráð fyrir að dómurinn nái til allra gengistryggðra bíla- og húsnæðislána einstaklinga, þrátt fyrir mismunandi ákvæði slíkra lána. Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis hefur fengið fjölmargar ábendingar frá áhorfendum og lesendum sem benda á að lánafyrirtækin hafi dregið lappirnar varðandi endurreikning á bílalánum þrátt fyrir að um það bil mánuður sé liðinn frá því að seinni dómur Hæstaréttar var kveðinn upp. Á vefsíðu Lýsingar segir að gera megi ráð fyrir því að í boðuðu lagafrumvarpi viðskiptaráðherra muni koma fram hvernig endurútreikningi skuli háttað. Fyrirtækið ætli því að bíða með að birta endanlega útfærslu á endurreikningi þar til umrætt lagafrumvarp hafi verið afgreitt sem lög frá Alþingi. Á vefsíðu SP-Fjármögnunar kemur fram að fyrirtækið hefur lokið við fyrsta áfanga endurútreiknings gengistryggðra bílalána og kaupleigusamninga. Í fyrsta áfanga séu virkir samningar þar sem einn og sami skuldari hefur verið frá útgáfudegi samnings. Avant virðist hafa beitt svipaðri aðferðarfræði og SP fjármögnun ef marka má upplýsingar á vefsíðu þeirra. Þar segir að enn ríki réttaróvissa um uppgjör yfirtekinna samninga. Efnahags- og viðskiptaráðuneytið gerir ráð fyrir að frumvarp ráðherra verði orðið að lögum fyrir áramót.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Sjá meira