Félagsbústaðir tóku milljarða gengistryggt kúlulán 16. október 2010 18:58
Félagsbústaðir tóku gengistryggt kúlulán árið 2007, sem stendur í tæpum milljarði króna með gjalddaga í ár. „Óskynsamlegt, eftir á að hyggja," segir framkvæmdastjórinn. Fréttastofa hefur undanfarið birt viðtöl við fólk í fullri vinnu en á lágum launum sem telur sig vart hafa efni á því að leigja félagslegar íbúðir hjá Reykjavíkurborg. Félagsbústaðir sjá um að reka allar félagslegar íbúðir í Reykjavík og er alfarið í eigu borgarinnar. Framkvæmdastjórinn segir útilokað að lækka leiguna. Funda með Íslandsbanka En hvernig skyldi standa á því? Félagsbústaðir keyptu íbúðir fyrir fimm milljarða króna á hápunkti fasteignabólunnar, 2007 og 2008 - og á í dag nær eina af hverjum 20 íbúðum í borginni. Fyrirtækið hefur tapað milljörðum á rekstrinum síðustu ár en vandinn í dag er hins vegar skammtíma gengislán sem félagið tók árið 2007 sem stendur nú í nærri milljarði króna með gjalddaga í desember. Félagið á fund með Íslandsbanka í næstu viku til að semja um lánið. Framkvæmdastjóri Félagsbústaða vonast til að hægt verði að borga lánið upp með því að selja 60 íbúðir í Fellahverfi á næstu 3-4 árum. Hann segir jafnframt að Félagsbústöðum hafi verið skylt að fjölga íbúðum í samræmi við stefnu borgarinnar. Eftir á að hyggja hafi það hins vegar verið óskynsamlegt að safna íbúðum á þessu tíma og fjármagna að hluta með gengisláni. Kerfið skoðað Jón Gnarr, borgarstjóri, segist ekki þekkja málið það vel til að geta svarað því hvort hann telji að félagslega íbúðakerfið í Reykjavík virki sem skyldi. Leigjendur félagslegra íbúða hafa gagnrýnt að leigan sé nánast jafnhá því sem gengur á almennum markaði. „Það segir okkur náttúrulega að það er eitthvað að," segir Jón. Hann segir að það hafi ekki verið ákveðið hvort kerfinu verði breytt en það verði skoðað.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira