Segir tímann vinna með Íslendingum í Icesave-deilunni Þorbjörn Þórðarson skrifar 31. ágúst 2010 18:30 Einar Páll Tamimi, lögmaður og fyrrverandi yfirlögfræðingur hjá EFTA-skrifstofunni í Brussel. Hann telur að tíminn vinni með Íslendingum í Icesave-málinu.
Tíminn vinnur með Íslendingum í Icesave-málinu, segir fyrrverandi yfirlögfræðingur hjá EFTA. Málsmeðferð fyrir EFTA-dómstólnum er sjaldan meiri en 6 til 7 mánuðir, samkvæmt athugun á vef dómstólsins, eða minna en helmingurinn af þeim tíma sem liðinn er síðan fyrst var samið um Icesave. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði í samtali við fréttastofu hinn 20. ágúst síðastliðinn að það yrði skelfileg niðurstaða ef Ísland tapaði máli fyrir EFTA-dómstólnum þegar hann var spurður hvort það væri gott eða slæmt að dómstóllinn dæmdi um lagaskyldu íslenskra ríkisins vegna greiðslna til hollenskra og breskra sparifjáreigenda á Icesave-reikningum Landsbankans. Sagðist Steingrímur enn sannfærður um að best væri að semja um skuldina. Bent hefur verið á að málsmeðferðartíminn hjá EFTA-dómstólnum sé langur og því sé betra að semja. Lausleg athugun fréttastofunnar á vef EFTA-dómstólsins í dæmdum málum undanfarinna tólf mánaða leiddi í ljós að málsmeðferðartími dómstólsins er oft í kringum 6-7 mánuðir og oft mun styttri. Í þessu samhengi má benda á að nú eru fjórtán mánuðir síðan fyrstu Icesave-samningarnir voru kynntir fyrir Alþingi. Einar Páll Tamimi, lögmaður og fyrrverandi yfirlögfræðingur hjá EFTA í Brussel, sagði í samtali við fréttastofu í dag að þegar hann hefði starfað hjá stofnuninni hefði málsmeðferðartíminn hjá dómstólnum verið í kringum sex mánuðir, sem er svipað og núna. Hann sagði að miðað við þær upplýsingar sem lægju fyrir um samningaviðræður við Breta og Hollendinga, sem hefðu þó ekki verið mjög gagnsæjar, sýndist honum að íslenska ríkið hefði í raun engu að tapa að fá lagaskyldunda dæmda þar sem „bardagalínan í samningaviðræðunum virtist ganga út frá því að lagaskyldan hvíldi á Íslendingum." Einar Páll sagði að fylgni álita ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, og dóma EFTA-dómstólsins væri fyrst og fremst til komin af því að ESA færi oftast ekki með mál fyrir dómstólinn nema telja sig nokkuð vissa í sinni sök. Þetta mál væri þó flóknara en mörg önnur mál sem EFTA-dómstóllinn hefði fjallað um vegna þeirrar neyðarsjónarmiða sem til skoðunar kæmu. Einar Páll er þarna að vísa til þess að Alþingi ákvað að færa innstæður í íslenskum útibúum innlendra lánastofnana fremstar í kröfuröð með neyðarlögunum svokölluðu í október 2008, og gaf út yfirlýsingu um tryggingu allra innstæðna, en rétturinn tók ekki til erlendra útibúa íslenskra banka.
Tengdar fréttir Eigum ekki að óttast EFTA-dómstólinn Lagaprófessor við Háskóla Íslands segir að íslensk stjórnvöld eigi ekki að óttast að láta EFTA-dómstólinn dæma í Icesave-málinu, en fjármálaráðherra segir að það yrði skelfileg niðurstaða af Íslendingar töpuðu málinu þar og vill frekar semja. 25. ágúst 2010 18:30 Skelfilegt að tapa fyrir EFTA-dómstól Fjármálaráðherra segir að það yrði skelfileg staða ef Íslendingar töpuðu máli Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave fyrir EFTA-dómstólnum. Stjórnvöld vinna nú að svari til eftirlitsstofnunarinnar og vona að samningaviðræður um Icesave hefjist að nýju í næsta mánuði. 21. ágúst 2010 18:34 Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Innlent Fleiri fréttir Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Sjá meira
Eigum ekki að óttast EFTA-dómstólinn Lagaprófessor við Háskóla Íslands segir að íslensk stjórnvöld eigi ekki að óttast að láta EFTA-dómstólinn dæma í Icesave-málinu, en fjármálaráðherra segir að það yrði skelfileg niðurstaða af Íslendingar töpuðu málinu þar og vill frekar semja. 25. ágúst 2010 18:30
Skelfilegt að tapa fyrir EFTA-dómstól Fjármálaráðherra segir að það yrði skelfileg staða ef Íslendingar töpuðu máli Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave fyrir EFTA-dómstólnum. Stjórnvöld vinna nú að svari til eftirlitsstofnunarinnar og vona að samningaviðræður um Icesave hefjist að nýju í næsta mánuði. 21. ágúst 2010 18:34