Innlent

Hélt að Össur væri að tala um tollhliðið á Seltjarnarnesi

Jón Gnarr, borgarstjóri.
Jón Gnarr, borgarstjóri. Mynd/Arnþór Birkisson
„Fékk nett sjokk, hélt hann væri að tala um mig og tollahlið á Seltjarnarnes. Fjúkkitt," segir Jón Gnarr, borgarstjóri, í dagbókarfærslu á samskiptasíðunni Facebook í kvöld. Þar vísar Jón til fréttar á Vísir.is þar sem Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, gagnrýnir harðlega Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra, vegna tollmúrs á innfluttar landbúnaðarvörur. „Össur: Tollmúrar Jóns algert brjálæði," er fyrirsögn umræddrar fréttar.

Eins og frægt er orðið var eitt af kosningaloforðum Besta flokksins í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna í vor að setja upp tollhlið við Seltjarnarnes. Enn sem komið er hefur því baráttumáli ekki verið hrint í framkvæmd.

Dagbók borgarstjóra er hægt að lesa hér.




Tengdar fréttir

Össur: Tollmúrar Jóns algert brjálæði

Tollmúrar Jóns Bjarnasonar landbúnaðarráðherra á innfluttar landbúnaðarvörur eru algert brjálæði, segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, og hvetur hann til að endurskoða ákvörðun sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×