Össur: Tollmúrar Jóns algert brjálæði 31. ágúst 2010 19:01
Tollmúrar Jóns Bjarnasonar landbúnaðarráðherra á innfluttar landbúnaðarvörur eru algert brjálæði, segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, og hvetur hann til að endurskoða ákvörðun sína. Erlendar landbúnaðarvörur eins og kjötálegg, kjúklingabringur, nautalundir, villibráð og ostar fóru fyrst að sjást í íslenskum verslunum eftir að samkomulag tókst á alþjóðavettvangi um að þjóðir heims opnuðu glufur í tollmúra sem reistir höfðu verið til verndar innlendum landbúnaði. Þegar Jón Bjarnason settist í stól landbúnarráðherra í fyrra var það eitt hans fyrsta verk að breyta framkvæmd á útreikningi tollkvóta þannig að tollmúrar snarhækkuðu. Þótt landbúnaðarráðherra annist framkvæmdina í þessu tilviki eru alþjóðasamningar á forræði utanríkisráðherra og sá er ekki sáttur. Össur Skarphéðinsson kveðst telja að ákvörðun landbúnaðarráðherra fari algerlega gegn anda samningsins og þeirra laga, sem á honum byggi. Þetta sé ekki beinlínis lögbrot en fráhvarf frá fyrri stefnu. „Ég er þeirrar skoðunar að þetta eigi að endurskoða og taka aftur," segir Össur. Hann telur að þau rök sem Jón viðhafði í fyrra, að spara þyrfti gjaldeyri, séu fallin úr gildi. Nú sé staðan miklu betri og hann telji það alveg ljóst að þessi ákvörðun eyðileggi innflutningskvótana. Össur tekur sem dæmi að þetta hafi valdið 20-faldri tollahækkun á frosnum nautalundum og 440 prósenta tollahækkun á kjúklingabringum, og kallar þetta upp á dönsku algert brjálæði. „Ég segi það alveg eins og er að mér finnst þetta bara „det gale vanvid"," segir Össur. Spurður hvort hann hafi nefnt þetta við ríkisstjórnarborðið, svarar hann: „Ég segi alltaf hug minn við ríkisstjórnarborðið og gerði það síðast í morgun."
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira