Lárus Welding: Hefðum kannski átt að biðja um minna 12. apríl 2010 20:28 Lárus Welding telur eftir á að hyggja að þeir hefðu komist upp með lægra lán.
Eitthvað virðist upphæðin sem stjórn Glitnis vildi fá lánaða hjá Seðlabanka Íslands hafa verið á reiki í lok septembers 2008. Lárus Welding, forstjóri Glitnis, lýsti því við skýrslutöku að farið hefði verið fram á 500 milljónir evra. Síðan bætti hann við: „Eftir á að hyggja var það nú ekki mjög vísindaleg tala hjá okkur og eflaust áttum við bara að biðja um minna sem hefði hugsanlega dugað." Þorsteinn Már Baldvinsson, sem þá var stjórnarformaður Glitnis, minntist þess reyndar við skýrslutöku að hann hefði nefnt 600 milljónir evra á fundi sínum með Davíð Oddssyni 25. september 2008 en það var upphæðin sem seðlabankinn vann út frá síðar. Þegar Davíð Oddsson var spurður að því við skýrslutöku hvort beiðni Glitnis hefði verið um veðlán eða lán til þrautavara svaraði Davíð: „Lán af þessu tagi er í eðli sínu þrautavaralán [...] þeir eru að biðja um lán í erlendum gjaldmiðli, það er ekki veðlán í okkar skilningi, það er þrautavaralán í erlendum gjaldmiðli." Við skýrslutöku lýsti Lárus Welding því að daginn áður en Þorsteinn Már Baldvinsson hélt til fundar við Davíð Oddsson í Seðlabanka Íslands hefði Lárus rætt við yfirmenn hjá J.P. Morgan. Lárus hafði þá eftirfarandi orð eftir yfirmanni hjá J.P. Morgan: „[...] við getum lánað milljarð til Íslands, við getum lánað milljarð punda til Íslands og það getur verið klárt innan 24 - 48 tíma en það er okkar stefna að við viljum lána þetta til Seðlabanka Íslands. Það er kominn tími, þeir geta ekki lengur staðið á hliðarlínunni, það er kominn tími að þeir komi sínu fjármálakerfi til aðstoðar eins og aðrir seðlabankar í heiminum. Niðurstaðan varð sú að lokum að Seðlabanki Íslands tók 75 prósent af hlutafé bankans yfir.
Mest lesið „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Innlent Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli Erlent Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Innlent Vill breyta nafni Viðreisnar Innlent Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Innlent Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Innlent „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Innlent Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna Innlent „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Innlent Gary Busey dæmdur fyrir kynferðisbrot Erlent Fleiri fréttir Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Sniðgangan friðsæl leið til að mótmæla og sýna samstöðu „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Fordæmalaust kynferðisbrotamál og viðbragð NATO við brölti Rússa Vill breyta nafni Viðreisnar Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Landsþing Viðreisnar hafið Peningakassa stolið af hóteli í miðbæ Reykjavíkur Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland rampar upp Úkraínu Drógu vélarvana togara í land „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Leiðinlegt að óprúttnir aðilar skemmi fyrir heyrnarlausum Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Segir lítið til í orðum ráðherra Gengur laus grunaður um barnaníð og meintar rangfærslur ráðherra Alvarlega slasaður eftir vélsleðaslys á Langjökli Stefán Einar greiðir fyrir umdeilda boli Breytingar á framhaldsskólastigi: „Við erum að reyna átta okkur á þessu“ Sjá meira