Getum dregið úr neyðinni á Haítí 16. janúar 2010 03:15 Judeline, níu ára íbúi SOS barnaþorps á Haíti, sendi Lindu Laufeyju Bragadóttur, íslenskri stuðningsmóður sinni þessa mynd af sér. mynd/aðsend
Fjörutíu og sex börn í barnaþorpi SOS í Santo rétt utan við Port-au-Prince á Haíti eiga stuðningsforeldra á Íslandi. Þau sluppu öll heil á húfi frá jarðskjálftanum á þriðjudagskvöld, að sögn Ragnars Schram, hjá SOS á Íslandi. Linda Laufey Bragadóttir og fjölskylda hennar hafa stutt eitt þessara barna, hina níu ára Judeline, í um tvö ár og fengu jólakort frá henni daginn eftir skjálftann. Á kortið hafði Judeline teiknað peningapoka með dollaramerki og óskum um gleðileg jól. „Það er ótrúleg tilviljun að Judeline skyldi skreyta kortið á þennan hátt,“ segir Linda Laufey. „Í ljósi þessara hörmulegu atburða fær þessi litli peningapoki aukið vægi og minnir okkur öll á hversu gott við getum látið af okkur leiða með fjárframlögum og dregið úr neyð þessa fólks.“ Ragnar Schram segir að þótt SOS starfi ekki við neyðaraðstoð veiti samtökin nú nauðstöddum þá hjálp sem þau geta. Þegar frá líði bíði gríðarleg enduruppbygging. Munaðarlausum börnum í SOS-þorpunum muni áreiðanlega fjölga á næstunni. SOS eru alþjóðleg samtök sem starfa í 132 ríkjum og reka tvö barnaþorp á Haítí. Íslendingar hafa stutt börn í þorpinu í Santo. - pg
Mest lesið Eyjólfur færir klukkuna aftur Innlent Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Innlent „Margir staðir og margir sakborningar“ Innlent Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum Innlent Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Innlent Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Erlent Noem rekin Erlent Rannsakar geimveður fyrir Bandaríkjaher Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Eyjólfur færir klukkuna aftur Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum „Margir staðir og margir sakborningar“ Rannsakar geimveður fyrir Bandaríkjaher „Er ekki alltaf gerlegt við þessar kringumstæður“ Viðreisn opinberar listann í Kópavogi Tveir í varðhaldi vegna hópárásar í miðbæ Plóma mjólkar mest allra kúa og setti Íslandsmet Þessi leiða Viðreisn í Garðabæ Kynnir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður við ESB fer fram Þau skipa lista Viðreisnar í Reykjavík Ráðist var á ungmenni í strætóskýli Íslendingar á flótta, nýr listi og fegrunaraðgerðir karla Óþolandi tafir vegna ágreinings við landeigendur heyri sögunni til Bein útsending: Kynna lista Viðreisnar borginni „Enginn meira hrelldur en ég þegar rödd Eiríks hljómaði á línunni“ Dómur barnaníðingsins Brynjars staðfestur Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Hættur við lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Breiðu bökin verði skattlögð svo forsendur kjarasamninga standist Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Ákvarðanir teknar af heift en ekki skynsemi Andstæðingum borgarlínu hafi verið bolað af lista Fjórir handteknir eftir alvarlega líkamsárás „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ ASÍ segir niðurskurðaraðgerðir ekki koma til greina Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Sjá meira