Þingmenn VG fara oftast í frí 4. október 2010 18:45
Þingmenn Vinstri grænna eru duglegastir í því að taka sér leyfi frá þingstörfum samkvæmt samantekt fréttastofu. Frá kosningum hafa þeir alls verið fjarverandi í rúma sex mánuði. Varaþingmen eru kallaðir til þegar þingmenn taka sér frí frá þingstörfum eða eru fjarverandi vegna veikinda eða opinberra starfa. Fréttastofa tók saman hversu oft þingmenn hafa kallað inn varamann frá kosningunum í fyrra vor en rétt er að taka fram að þessi samantekt nær ekki til þeirra þingmanna sem hafa verið í fæðingarorlofi eða tekið sér tímabundið leyfi í tengslum við skýrslu rannsóknarnefndar alþingis. Þingflokkur vinstri grænna er eftstur á blaði með samtals 200 daga. Atli Gíslason hefur þrisvar kallað inn varamann nú síðast á föstudag þegar hann fór í þriggja vikna frí. Frá kosningum hefur Atli því verið í leyfi frá þingstörfum í 71 dag eða í tæpa þrjá mánuði. Næstur kemur Árni Þór Sigurðsson, flokksbróðir Atla, en hann hefur verið fjarverandi í 49 daga frá kosningum. Rétt er að taka fram að Árni er formaður utanríkismálanefndar Alþingis og hefur því oft þurft að kalla inn varamann vegna þátttöku í alþjóðastörfum. Sjálfstæðismenn eru næst duglegastir með 49 daga í fjarveru örlítið meira en þingmenn Samfylkingar sem eru með 42 daga. Þar á eftir koma framsóknarmenn með 35 daga og svo Hreyfingin með 14 daga. Ekki fékkst uppgefið hvort þingmenn voru fjarverandi vegna einkaerinda eða vegna opinberra starfa. Samkvæmt lögum þiggur hins vegar þingmaður sem fjarverandi í einkaerindum ekki laun fyrir þann tíma sem varamaður hans situr á þingi. Athugasemd frá ritstjórn: Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Framsóknarflokks, tóku sér fæðingarorlof á tímabilinu og eiga því ekki heima í þessari samantekt. Sjálfstæðismenn eru því alls með 17 daga og framsóknarmenn þrjá.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira