Lífið

Djöflasýrubeikon auglýsir úlpur

bacon live support unit Úr myndbandi við lagið „Things“, sem Fiona Cribben – „búningahönnuður frá helvíti“ eins og Bogi kallar hana – gerði.
bacon live support unit Úr myndbandi við lagið „Things“, sem Fiona Cribben – „búningahönnuður frá helvíti“ eins og Bogi kallar hana – gerði.

„Fyrir einhverja hundaheppni gátum við selt gamalt lag í North Face-auglýsingu í Japan og fengum nógu mikið af peningum til að gera heila plötu. Og þetta er hún," segir Bogi Reynisson í hljómsveitinni Bacon Live Support Unit um plötuna Rodentmaster sem er nýkomin út. „Þessi kona hafði bara samband. Hún hafði heyrt lagið Powerprest - ég veit ekkert hvernig hún heyrði það, líklega á ferðalagi hérna - og vildi endilega fá að nota það. Og við bara, já já, endilega."

North Face selur útivistarfatnað, en Bogi segir Bacon langt í frá flytja eitthvert útivistarrokk. „Við spilum einhverja djöflasýru. Við erum tiltölulega lausir við það að þurfa að gera einhverjum til geðs nema okkur sjálfum. Við gerum bara þá tónlist sem við myndum vilja heyra sjálfir. Og það er frekar drungaleg tónlist þessa dagana," segir hann.

Bogi var á árum áður m.a. í Stjörnukisa og Sororice, en með honum í Beikoni eru Maggi trommari sem m.a. var í Bleiku böstunum, Guðmundur sem var í 2001, Pétur sem var í Skátum og Gísli sem var í Stjörnukisa. Rodentmaster inniheldur níu lög sem eru öll flutt og samin af hljómsveitinni sjálfri, nema titillagið Rodentmaster sem samið er af Páli Thayer. Þrjú laganna eru sungin.

Fyrir nokkrum árum gerði Bacon þrjár styttri plötur (Krieg, Jenny og Kamel), sem Bogi segir að innihaldi hálfgerð demó. Sum þeirra laga eru á nýju plötunni í fyllri útgáfum. Platan fæst í helstu plötubúðum og einnig er hægt að nálgast hana á gogoyoko.com þar sem hægt er að hlusta á hana í heild sinni án endurgjalds. Útgáfutónleikarnir verða í kjallara Kaffi Kúltúra laugardagskvöldið 13. mars og verður ókeypis inn. - drg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.