Innlent

Rauði krossinn sendir fleiri hjálparstarfsmenn til Haítí

Sendifulltrúarnir.
Sendifulltrúarnir.

Sex íslenskir hjálparstarfsmenn eru á leið til Haíti nú um helgina að beiðni Alþjóða Rauða krossins. Mánuður er nú liðinn frá því jarðskjálftinn mikli reið þar yfir, og hefur Alþjóða Rauði krossinn hækkað neyðarbeiðni sína úr 12 milljörðum íslenskra króna í 25 milljarða.

Fjórir hjúkrunarfræðingar, Áslaug Arnoldsdóttir, Maríanna Csillag, Erla Svava Sigurðardóttir og Lilja Óskarsdóttir munu starfa við tjaldsjúkrahús þýska og finnska Rauða krossins í fátækrahverfinu Carrefour í Port-au-Prince.

Kristjón Þorkelsson verður ábyrgur fyrir skipulagningu vatnshreinsimála á meðan á neyðaraðgerðum stendur, og Sólveig Björk Sveinbjörnsdóttir gengur til liðs við alþjóðlegt sérfræðiteymi sem nú vinnur að skipulagningu uppbyggingarstarfs Rauða kross hreyfingarinnar á Haítí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×