Innlent

Annar maður féll í jökulsprungu á Langjökli

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Lögreglan á Selfossi barst tilkynning á þriðjudag í síðustu viku um vélsleðaslys austan til á Langjökli en þá féll maður ofan í sprungu og handleggsbrotnaði.

Maðurinn var ásamt tveimur öðrum á ferð um jökulinn á vélsleðum þegar þeir lentu inni á sprungusvæði með þeim afleiðingum að hann féll þrjá til fjóra metra niður í sprungu.

Mennirnir komust af sjálfsdáðum ofan af jöklinum og til byggða þar sem þeir tilkynntu um atvikið. Maðurinn leitaði til læknis sjálfur og lét gera að handleggsbrotinu.

Eins og kunnugt er þá féllu mæðgin ofan í djúpa sprungu á Langjökli á laugardaginn. Þá lést móðirin en sjö ára sonur hennar sem féll einnig ofan í sprunguna er á batavegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×