Garðurinn kvikmyndaður 22. janúar 2010 05:00 draugasaga kvikmynduð Frá vinstri: Valgerður Benediktsdóttir hjá Réttindastofu Forlagsins, Snorri Þórisson framleiðandi, Reynir Lyngdal, Gerður Kristný og Sigþrúður Gunnarsdóttir, útgáfustjóri barna- og unglingabóka hjá Forlaginu.
Fyrirtækið Pegasus hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn að Garðinum, dularfullri draugasögu Gerðar Kristnýjar sem kom út hjá Máli og menningu árið 2008. Leikstjóri verður Reynir Lyngdal og hefst vinnan við handritið innan tíðar. „Mér finnst þetta ofboðslega skemmtilegt, sér í lagi að Reynir Lyngdal eigi eftir að leikstýra henni. Ég hef þekkt hann lengi og mér finnst hann skemmtilegur," segir Gerður Kristný. Bókin, sem er ætluð lesendum frá 11 ára aldri, var valin besta barnabók ársins 2008 af bóksölum og er tilnefnd til Vestnorrænu barna- og unglingabókaverðlaunanna árið 2010. Aðspurð segist Gerður hafa séð fyrir sér að bókin gæti hugsanlega hentað sem kvikmynd. „Hún gerist á myndrænum og skemmtilegum stöðum eins og Hólavallagarði, Fógetagarðinum, Gamla vesturbænum og í Grjótaþorpi. Þannig að þetta ætti ekki að vera svo flókið og gæti komið vel út í kvikmynd." Sjálf vonast hún til að verða stadisti í myndinni. „Ég vona að ég fái að vera draugur. Ég er viss um að ég get litið út eins og gröftur úpp úr gröf. Ég setti þetta samt ekki í smáa letrið," segir hún og hlær. Gerður hefur þegar selt til Hollywood kvikmyndaréttinn að bók sinni Myndin af Pabba sem fjallar um ævi Telmu Ásdísardóttur. Ekki hefur verið ákveðið hvenær hún verður framleidd. -fb
Mest lesið Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir Lífið Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Lífið Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Lífið Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Tónlist „Fallegur fjölskyldusamruni“ Lífið 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Fleiri fréttir Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ Sjá meira