Innlent

Þjófar fylgdust með rýmingu vegna eldgossins

Grunur leikur á um að erlent þjófagengi hafi ætlað að nýta sér rýmingu heimila vegna eldgossins á Fimmvörðuhálsi til að brjótast inn á sveitabæi. Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði grunsamlega menn inni á rýmingarsvæði í fyrrinótt.

„Þar urðu við varir við hóp af þekkum erlendum brotamönnum sem að við snérum við og komum í burtu. Við vitum ekki hvað þeir voru að þvælast þarna en við gerum ráð fyrir að þeir hafi að kanna jarðveginn," segir Sveinn Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli. „Þetta voru aðilar sem eiga sér sögu hjá lögreglunni fyrir innbrot og þjófnað."

„Þeir gáfu þær skýringar að þeir væru bara að skoða svæðið en við fylgdust vel með þeim og höfum fylgst vel með allri umferð á svæðinu," segir Sveinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×