Enn bætist við meiðslalista Arsenal - tveir missa af United-leiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. janúar 2010 16:30 Eduardo da Silva gengur hér meiddur af velli í gær. Mynd/AFP
Arsenal verður án marga sterkra leikmanna þegar liðið mætir Manchester United á Emirates-vellinum í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn. Thomas Vermaelen og Eduardo da Silva bættust á meiðslalistann í markalausa jafnteflinu á móti Aston Villa í gær en þar fyrir eru menn eins og Robin van Persie, Johan Djourou, Kieran Gibbs, Fran Merida og Abou Diaby. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, óttast það að Vermaelen sé fótbrotinn. „Hann gengur um á hækjum og þetta er fíbúlan. Við eigum eftir að kanna hvort að hún sé brotin eða hvort að þetta sé taugaskemmd," sagði Wenger um belgíska miðvörðinn sem hefur spilað svo vel á tímabilinu. „Eduardo tognaði aftan í læri og þó að þetta sé lítil skemmd þá verður hann ekki með á sunnudaginn," sagði Wenger. Wenger þarf væntanlega að nota Sol Campbell (35 ára) og Williams Gallas (32 ára) saman í öftustu varnarlínu Arsenal-liðsins á móti Manchester United sem þýðir að miðvarðarparið verður 67 ára samanlagt. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Arsenal ef liðið ætlar að halda sér inni í meistarabarátunni því tapist leikurinn og Chelsea vinnur á laugardaginn þá er liðið farið að dragast aftur úr. Chelsea yrði þá komið fimm stigum á undan Arsenal og United verður fjórum stigum á undan lærisveinum Wenger fari allt á versta veg á sunnudaginn.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Sjá meira