Innlent

Kosið í stjórn RÚV til eins árs

Alþingi kom saman 8. janúar og setti lög um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna Icesave.fréttablaðið/gva
Alþingi kom saman 8. janúar og setti lög um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna Icesave.fréttablaðið/gva

Alþingi verður sett á ný á föstudag klukkan 12. Fyrir þinginu liggur að kjósa fimm manna stjórn Ríkisútvarpsins ohf. til eins árs og fimm til vara.

Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að stjórnarflokkarnir hyggist tilnefna sömu fulltrúa á ný.

Svanhildur Kaaber verði áfram formaður og þau Ari Skúlason og Margrét Frímannsdóttir eigi áfram sæti í ráðinu. Þá verður einnig fyrsta umræða um lagafrumvarp Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, um ítarlegar breytingar á lögum um banka og fjármálafyrirtæki. - kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×