Allt of mikil áhersla lögð á frjálsa samninga Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. janúar 2010 13:16 Gylfi Arnbjörnsson segir of mikla áherslu lagða á frjálsa samninga bankanna. Mynd/ Vilhelm.
Stjórnvöld hafa lagt allt of mikla áherslu á að bankarnir eigi að leysa úr vanda heimilanna á grundvelli frjálsra samninga, segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Hann segir að afstaða ASÍ hafi verið sú að þó það geti í sjálfu sér verið hið besta mál að ýta undir slíka frjálsa samninga, þar sem það eigi við, sé rangt að ganga út frá því að bankarnir muni nálgast þetta verkefni eins og um félagslegar stofnanir sé að ræða. „Auðvitað munu þeir nálgast málið á grundvelli eigin hagsmuna og hagsmuna eigenda sinna - ekki almennings. Því hefur ASÍ haldið til streitu þeirri kröfu sinni og margítrekað hana, að það sé á ábyrgð stjórnvalda en ekki bankanna að leggja grunn að réttlátri og skilvirkri lausnum fyrir heimilin," segir Gylfi. Sérstaklega sé ASÍ umhugað um þann u.þ.b. fimmtung landsmanna sem ennþá býr við alvarlegan vanda 15 mánuðum eftir efnahagshrunið. Í nýlegri könnun ASÍ á högum almennings og þátttöku þeirra í þeim úrræðum sem mótuð hafi verið komur í ljós að þó þátttaka í þessum úrræðum hafi vissulega aukist sl. hálfa árið séu allt of margir ennþá í verulegum vanda. „Þetta gengur ekki lengur og því skora ég á ríkisstjórn og stjórnarandstöðu til að sameinast um brýn úrræði bæði er varðar greiðsluaðlögun heimilanna og bætta réttarstöðu skuldara vegna gjaldþrota. Það er ástæða til þess að tengja þessa stöðu við gerð og þróun svokallaðs stöðugleikasáttmála frá því í júní á síðasta ári. Með þessum sáttmála tókust sögulegar sættir milli flest allra aðila á vinnumarkaði og stjórnvalda - samstaða sem hafði það að leiðarljósi að takast bæði á við efnahagshrunið og afleiðingar þess en leggja samtímis grunn að nýrri sókn í efnahags- og atvinnumálum byggt á varanlegum og trúverðugum stöðugleika," segir Gylfi.
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Innlent Fleiri fréttir Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Sjá meira