Berst gegn tilraunum til ritskoðunar vegna ofbeldisfullrar leiksýningar 28. janúar 2010 15:21 Þorleifur Arnarsson að ræða við einn leikara í leiksýningu sem hann setti upp. Mynd/ Midjan.is "
Þetta er sýning um ofbeldi og vald," segir Þorleifur Örn Arnarsson leiksstjóri sem setur um þessar mundir upp leikritið A Clockwork Orange í Borgarleikhúsinu í Schwerin í Þýskalandi. Verkið hefur nú þegar vakið upp sterk viðbrögð, leikkona kúgaðist yfir ofbeldinu á æfingu og leikhússtjórinn boðaði komu sína til að bera ofbeldið eigin augum. "Hann hafði áhyggjur af því að sýningin væri of gróf fyrir Borgarleikhúsið hérna í Schwerin en við sögðum á móti hvernig maður gæti sett upp verk eins og Clockwork Orange án þess að draga ofbeldið fram í sviðsljósið. Það fyndna er samt að mestar áhyggjur hafði hann af brunni sem er í laginu eins og typpi og svo mynd af berbrjósta konu á bakvegg í sviðsmyndinni. Skinhelgin er oft mikil hérna í Þýskalandi - það er í lagi að berja og nauðga á sviðinu en eitt typpi eða brjóst er yfir strikið."Malcom McDowell túlkaði algjörlega geðtruflaðan ofbeldissegg í kvikmynd Stanley Kubricks, A Clockwork Orange.Leikhússtjórinn hefur ekki tekið afstöðu gagnvart sýningunni eða hvort hann setji Þorleifi stólinn fyrir dyrnar með einhverskonar ritskoðun. Sjálfur segir Þorleifur að það komi ekki til greina að lúta ritskoðun sýningarinnar enda sé sagan upprunalega bæði ofbeldisfull og klámfengin, eins og þeir vita sem séð hafa kvikmyndina sem Stanley Kubrick leikstýrði á áttunda áratugnum. Uppsetning Þorleifs er líka óvenjuleg fyrir þær sakir að með Þorleifi starfa tveir aðrir Íslendingar - Jósef Halldórsson býr til sviðsmynd og búninga og Símon Birgisson sér um tónlist verksins. "Ætli það megi ekki kalla þetta ákveðna leikhúsútrás en Jósef sá um sviðsmyndina með mér í öðru verki hér í Schwerin á síðasta ári og ég og Símon höfum unnið að nokkrum uppfærslum saman." A Clockwork Orange verður frumsýnt í Schwerin 11 febrúar og má eflaust búast við einhverjum viðbrögðum. "Maður lætur svoleiðis samt ekki stoppa sig. Maður býr til leikhús til að spyrja spurninga, ögra og kryfja samfélag sitt. Verk eins og A Clockwork Orange hefur alltaf verið umdeilt og mun vera það áfram, því þrátt fyrir ofbeldið veitir það innsýn inn í samfélag skinhelgi og yfirborðsmennsku".
Mest lesið Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Innlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent „Það verður boðið fram í nafni VG“ Innlent Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Innlent Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Innlent „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Innlent Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Innlent Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Innlent Fleiri fréttir „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Jónína vill taka við af Ásmundi Einari „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Sjá meira