Úttekt landlæknis á öryggi vegna mönnunar ekki gölluð 28. janúar 2010 13:18
Landlæknisembættið hefur enga ástæðu til að efast um áreiðanleika eða réttmæti gagna úr sjúklingaflokkunarkerfi Landspítalands og stendur við þær upplýsingar sem fram koma í greinargerð til heilbrigðisráðherra um mat á stöðu öryggismála varðandi mönnun á spítalanum. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga gagnrýnir úttektina harðlega. Hún sé að stórum stórum hluta byggð á upplýsingum úr sjúklingaflokkunarkerfi sem hefur ekki verið uppfært í langan tíma og var aflagt í nóvember. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður félagsins, segir í Fréttablaðinu í dag að við greiningu Landlæknisembættisins sé notað gagnagrunnur sem hafi ekki verið uppfærður síðan 2004. Fram kemur í yfirlýsingu á vef Landlæknis að sjúklingaflokkunarkerfið hafi verið notað á Landspítalanum allt frá árinu 1987 í þeim tilgangi að fylgjast með hjúkrunarþörfum sjúklinga og reikna út æskilega mönnun í samræmi við þær. Landlæknisembættið telji gögnin afar mikilvæg fyrir eftirlit með hjúkrunarþjónustu á spítalanum. Hafa verði í huga að kerfið mæli þarfir sjúklinga fyrir hjúkrun en ekki vinnuframlag einstakra starfsstétta.Störf á sjúkrahúsum í eðli sínu álagsstörf „Eins og fram kemur í greinargerð Landlæknisembættisins er alkunna að breytingar valda álagi, ekki síst ef starfsfólk telur sig skorta upplýsingar, mikil óvissa ríkir, starfsfólkið er mótfallið breytingunum eða ef breytingarnar snerta starfsöryggi þess. Margt af þessu á við um Landspítalann um þessar mundir, en kemur ekki fram í gögnum úr sjúklingaflokkun af augljósum ástæðum." Þá er tekið fram að störf á sjúkrahúsum séu í eðli sínu álagsstörf. Kannanir um starfsálag sem gerðar voru árin 2006 og 2009 gefi til kynna að álag í starfi meðal hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sé mikið og streita þó nokkur. Æskilegt væri að endurtaka slíka könnun. „Fram hefur komið að núverandi sjúklingaflokkunarkerfi hefur verið tekið úr notkun og er áætlað að taka upp annað sjúklingaflokkunarkerfi á næstunni. Landlæknisembættið tekur undir að mikilvægt sé að hafa tiltækt sjúklingaflokkunarkerfi í hjúkrun til að fylgjast með hjúkrunarþörfum og mönnun, enda er slíkt tæki mikilvægt fyrir eftirlit embættisins," segir á vef Landlæknis.
Tengdar fréttir Úttekt landlæknis á öryggi sögð gölluð Ný úttekt landlæknisembættisins á stöðu öryggismála vegna mönnunar á Landspítalanum, sem unnin var að beiðni heilbrigðisráðherra, var að stórum hluta byggð á upplýsingum úr sjúklingaflokkunarkerfi sem hefur ekki verið uppfært í langan tíma og var aflagt í nóvember. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) gagnrýnir úttektina harðlega. 28. janúar 2010 06:00 Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira
Úttekt landlæknis á öryggi sögð gölluð Ný úttekt landlæknisembættisins á stöðu öryggismála vegna mönnunar á Landspítalanum, sem unnin var að beiðni heilbrigðisráðherra, var að stórum hluta byggð á upplýsingum úr sjúklingaflokkunarkerfi sem hefur ekki verið uppfært í langan tíma og var aflagt í nóvember. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) gagnrýnir úttektina harðlega. 28. janúar 2010 06:00