Innlent

Gefa leikskólum rösklega fjögur tonn af pappír

Úr safni.
Úr safni.
Leikskólar landsins fá á næstu dögum stóra gjöf, rösklega fjögur tonn að þyngd. Gjöfin er pappír, og það eru Oddi, Íslandspóstur og fyrirtækið Umslag sem gefa öllum leikskólum á landinu pappír undir listaverk leikskólabarna. Börnin á Skógarborg í Reykjavík fengu fyrsta skammtinn í morgun.

Tilgangurinn er að vekja athygli á nýju umhverfisverkefni - sem ber yfirskriftina Pappír í sátt - og beinir sjónum að því að pappírsframleiðsla í Evrópu sé í sátt við umhverfið, eins og segir í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×