Innlent

Barn fékk stíflueyði á sig

Barn á öðru ári fékk yfir sig stíflueyði með ætandi efnum, í heimahúsi á Selfossi í gær.

Það var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans, en samkvæmt óstaðfestum fregnum Fréttastofu mun hörund barnsins hafa brunnið minna en óttast var í upphafi.

Ekki liggja fyrir upplýsingar um tildrög slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×