Innlent

Árni Páll óttast ekki málsókn

Árni Páll Árnason.
Árni Páll Árnason.

Félagsmálaráðherra hyggst leggja fram nýtt frumvarp í vikunni, þar sem meðal annars er tekið á vanda þeirra sem eru að sligast undan háum bílalánum.

Búast má við að svokölluð 110% leið verði farin, sambærileg þeirri sem bankarnir hafa boðið fólki í yfirveðsettum fasteignum. Félagsmálaráðherra gagnrýnir útlánastefnu bílalánafyrirtækjanna:

„Það felst í því ábyrgð að taka lán en það felst líka ábyrgð í því að veita lán. Þessi fyrirtæki veittu lán án þess að kanna nokkuð hver bakgrunnur og greiðslugeta fólks væri. Fólki með litlar tekjur voru veitt lán engu að síður fyrir kaupum á dýrum bílum," segir Árni.

Fréttastofa greindi frá því í gær að ríkið gæti átt yfir höfði sér málsókn frá Deutsche bank nái hugmyndir félagsmálaráðherra um afskriftir á bílalánum fram að ganga. Þýski bankinn er stærsti lánveitandi Lýsingar, sem færi í þrot.

Árni Páll óttast ekki málsókn og segir ríkisstjórnina hafa efnislög rök fyrir þessum aðgerðum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×