152 létust í mannskæðasta flugslysi í sögu Pakistans 29. júlí 2010 07:15 Brak úr vélinni dreifðist um stórt svæði í hlíðinni og voru aðstæður til leitar mjög erfiðar. fréttablaðið/ap
152 létust þegar farþegaþota fórst í nágrenni við Islamabad, höfuðborg Pakistans í gær. Enginn komst lífs af. Slæmt veður var þegar slysið varð, mikið rok, rigning og þoka, og er talið að það geti hafa átt þátt í slysinu. Þotan var á leið frá Karachi til Islamabad í gærmorgun og var að reyna að lenda í Islamabad þegar hún hrapaði niður í hlíð um fimmtán kílómetra frá flugvellinum. Vélin missti samband við flugturn stuttu fyrir brotlendingu en engin merki um vandræði bárust frá flugmönnum hennar áður en það gerðist. Ekki var heldur vitað um nokkra bilun í vélinni. Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Pakistan í dag vegna slyssins, sem er hið mannskæðasta í sögu landsins. Þá höfðu þjóðhöfðingjar Bandaríkjanna, Bretlands og fleiri landa sent samúðarskeyti vegna slyssins í gær. Hundruð manna söfnuðust saman á flugvellinum í Islamabad til að fá upplýsingar um slysið, sem var erfitt að fá í fyrstu. Margir gagnrýndu ríkisstjórnina og sögðu hana veita of litlar upplýsingar og aðhafast of lítið á slysstað. Upphaflega var greint frá því að nokkrir hefðu komist lífs af úr slysinu, en þær fréttir voru svo dregnar til baka. Að sögn sjónarvotta var aðkoman hræðileg, og dreifðust brak og líkamsleifar um stórt svæði í hlíðinni. Veður og erfiðar aðstæður gerðu björgunarmönnum einnig erfitt um vik. 115 lík höfðu fundist í gærkvöldi, en framkvæma þarf DNA-rannsóknir til þess að bera kennsl á líkin. Flestir farþegar vélarinnar voru Pakistanar, en sendiráð Bandaríkjanna í landinu segir að tveir bandarískir ríkisborgarar hafi einnig verið um borð. Ekki er enn vitað hvað olli slysinu, en í gærkvöldi hafði annar flugriti vélarinnar fundist. Ríkisstjórn Pakistans hefur sagt að ekki sé talið að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Vélin var af gerðinni Airbus A321 og var í eigu flugfélagsins Airblue, sem flýgur innanlands í Pakistan en einnig til Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Ómans og Bretlands. Þetta er í fyrsta sinn sem fólk lætur lífið í flugslysi hjá flugfélaginu. Síðast varð mannskætt flugslys í landinu árið 2006, en þá létu 45 manns lífið þegar Fokker-vél hrapaði niður á akur í nágrenni borgarinnar Multan. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira