Innlent

Flugslys: Fólkið ekki í lífshættu

Líðan fólksins sem lenti í flugslysi í sumarhúsabyggð nærri Flúðum í gær er stöðugt að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans.

Fólkið var um borð í lítilli Cessna flugvél þegar hún hrapaði til jarðar, en fjórir voru um borð. Fólkið var flutt á gjörgæsludeild í gærkvöldi en það er ekki í lífshættu.

Þyrla landhelgisgæslunnar sótti fólkið um miðjan dag í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×