Missti tíu milljóna réttindi fyrir mistök 29. apríl 2010 03:00 Sveitarstjórinn, sem situr hér með Hlíf Herbjörnsdóttur, eiginkonu sinni, hefði getað farið á eftirlaun fyrir fimm árum á samanlögðum lífaldri og starfsaldri ef Djúpavogshreppi hefði láðst að sækja um aðild að B-deild Lífeyrissjóðs ríkisstarfsmanna. MYnd/Andrés Björnsson
Björn Hafþór Guðmundsson, sveitarstjóri á Djúpavogi, nýtur allt að tíu milljóna króna minni lífeyrisréttinda en lagt var upp með þegar hann var ráðinn til sveitarfélagsins fyrir átta árum. Björn Hafþór hóf að greiða í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisns (LSR) þegar hann gerðist kennari á Stöðvarfirði árinu 1968. Því hélt hann áfram á meðan hann var sveitarstjóri Stöðvarhrepps á árunum 1982 til 1991, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi til 1998 og bæjarstjóri á Austur-Héraði til ársins 2002. Þegar LSR var skipt í A-deild og B-deild, valdi Björn Hafþór B-deildina eins og flestir eldri sjóðfélagar. Á daginn kom að Djúpavogshreppur fyrir sitt leyti hafði ekki formlega sótt um aðild að B-deildinni. Þetta hafði í för með sér að Björn Hafþór, sem nú er 63 ára, gat ekki nýtt sér svokallaða 95 ára reglu um sameiginlegan líf- og starfsaldur til að fara fyrr á eftirlaun. Í haust nær þessi samanlagði aldur hjá Birni Hafþóri 105 árum. Með öörum orðum þá hefði hann getað farið á eftirlaun fyrir fimm árum ef sveitarfélaginu hefði sótt um aðild að B-deild LSR. „Það hefur verið reiknað út, miðað við lífaldur og fleira, að þetta séu átta til tíu milljónir króna sem munar,“ útskýrir hann réttindamissinn. Bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Hæstiréttur dæmdu að Birni Hafþóri hefði ekki réttindi eins og ef hann hefði verið í B-deild lífeyrissjóðsins. „Mönnum láðist bara að sækja formlega um aðild að þessu. Þegar þeir réðu mig voru allir í góðri trú. Þetta er bara eitthvert ansans formsatriði sem þeir hjá lífeyrissjóðnum eru að hengja sig í,“ segir Björn Hafþór. Mál sveitarstjórans hefur um allnokkurt skeið verið til umfjöllunar innan sveitarstjórnar Djúpavogs sem telur ljóst að ekki hafi verið staðið við ráðningarsamning og hann eigi kröfurétt á sveitarfélagið. Oddvitanum var því falið að semja við Björn Hafþór og leysa málið „á sem ásættanlegastan hátt fyrir báða aðila“. Tryggingarfræðingur hefur farið yfir stöðuna en málið er þó enn óafgreitt. Sjálfur kveðst sveitarstjórinn aldrei hafa ætlað að gera sveitarfélagið að fullu ábyrgt fyrir hans réttindatapi og ætli ekki að fara í málaferli. „Ég hef orðað það þannig að mér hafi einfaldlega verið refsað fyrir að flytja yfir Öxi; úr Skriðdal og niður í Berufjörð,“ segir Björn Hafþór, sem ætlar að hætta eftir kosningar í vor og kveðst bera sig vel. „Trúlega eru margir jafnaldrar mínir verr settir en ég hvað lífeyri snertir.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira